Íslenskt

Birt þann 28. ágúst, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Haustráðstefna Advania fer fram 6. september

Skráningar á haustráðstefnu Advania, sem fram fer þann 6. september nk., eru nú orðnar um 300 talsins – fleiri en nokkru sinni á sama tíma. Skráningarfrestur á sérstöku tilboðsverði rennur út á föstudag, 30. ágúst.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar í ár verða Michael Schrage frá MIT, Steve Midgley frá Amazon og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík. Fyrirlestur Schrage ber yfirskriftina „Hvernig vilt þú að viðskiptavinir þínir séu?“ en Midgley fjallar um notkun tölvuskýja við nýsköpun. Mikil leynd hvílir aftur á móti yfir fyrirlestri borgarstjórans en hann er fyrstur á mælendaskrá eftir setningu ráðstefnunnar.

Haustráðstefna Advania hefur skipað sér sess sem stærsti viðburður ársins á sviði tölvu- og upplýsingatækni á Íslandi en hún er jafnframt ein elsta árlega tækniráðstefnan í Evrópu. Um 850 manns sóttu hana í fyrra. Ráðstefnan fer nú fram í 19. skipti og boðið verður upp á vel á fjórða tug fyrirlestra.

Skráning og allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á http://www.advania.is/haustradstefna.

– Fréttatilkynning frá Advania
Deila efni

Tögg:


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑