Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Bíó og TV»Gagnagrunnur um íslenskar kvikmyndir opnaður
    Bíó og TV

    Gagnagrunnur um íslenskar kvikmyndir opnaður

    Höf. Nörd Norðursins24. febrúar 2012Uppfært:20. janúar 2013Engar athugasemdir1 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Nú geta unnendur íslenskra kvikmynda glaðst, gagnagrunnur um íslenskar kvikmyndir hefur verið opnaður, þar er að finna um 8.000 manns, 700 fyrirtæki og ríflega 1.200 kvikmyndatitla.
    Kvikmyndavefurinn.is er glæsilegur miðlægur gagnagrunnur um íslenskar kvikmyndir. Vefurinn er á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið, en hann var opnaður formlega í dag.

    Hægt er að leita eftir myndum (kvikmyndum í fullri lengd, stuttmyndum, heimildarmyndum o.s.frv), persónu (leikstjóra, handritshöfundi, leikara o.s.frv.) eða framleiðslufyrirtæki. Einnig er hægt að fá lista yfir allar íslenskar myndir eftir ártali, flokkum (genre) eða stafrófstöð. Það er misjafnt eftir kvikmyndum hversu miklar upplýsingar og efni er aðgengilegt. Til dæmis er hægt að horfa á stiklur fjölmargra kvikmynda, sækja plaköt og sjá lista yfir leikara myndanna, tæknifólkið, handritshöfunda, leikstjóra o.s.frv.

    Kvikmyndamiðstöð Íslands segir að markmið gagnagrunnsins sé að varðveita upplýsingar um íslenskar kvikmyndir sem allir áhugasamir geti nýtt sér, sama hvort um er að ræða áhugamenn, fagfólk eða kynningarstarf erlendis.

    Nörd Norðursins óskar Kvikmyndamiðstöð Íslands og öllum Íslendingum innilega til hamingju með þennan öfluga gagnagrunn og stórglæsilegan vef!

    Smelltu hér til að lesa fréttatilkynningu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands í heild sinni.

    Forsíðumynd: 79 af stöðinni.

    – BÞJ

    Bjarki Þór Jónsson gagnagrunnur íslenskar kvikmyndir íslenski kvikmyndaiðnaðurinn íslenskir leikarar íslenskir leikstjórar Kvikmyndamiðstöð Íslands Kvikmyndavefurinn
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaDrezi spilar gegn Quantic Destiny í Starcraft 2
    Næsta færsla Star Wars endurtalsett [MYNDBAND]
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Íslenskir leikir á afslætti á Steam haustútsölunni

    4. október 2026

    Vinnustofa í handritagerð fyrir tölvuleiki

    19. september 2026

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #73 – Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant

    12. október 2026

    Íslenskir leikir á afslætti á Steam haustútsölunni

    4. október 2026
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026

    Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin

    28. september 2026

    Vinnustofa í handritagerð fyrir tölvuleiki

    19. september 2026
    Leikjarýni
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026
    8

    AC Black Flag Resynced – Svarti fáninn rís á ný

    8. júlí 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #73 – Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant
    • Íslenskir leikir á afslætti á Steam haustútsölunni
    • Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri
    • Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin
    • Vinnustofa í handritagerð fyrir tölvuleiki
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.