Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Fréttir1»SOPA og PIPA: Ritskoðun á Internetinu
    Fréttir1

    SOPA og PIPA: Ritskoðun á Internetinu

    Höf. Nörd Norðursins23. desember 2011Uppfært:10. nóvember 20127 athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    SOPA (Stop Online Piracy Act) og PIPA (Protect IP Act, eða Preventing Real Online Threats to Economic Creativity and Theft of Intellectual Property Act) eru bandarísk frumvörp um reglur sem eiga að nýtast til þess að stöðva ólöglega dreifingu höfundaréttarvarins efnis á Internetinu, t.d. kvikmyndir, tónlist, sjónvarpsþætti, tölvuleiki og fleira.

    Það sem gerir SOPA og PIPA fyrst og fremst að umdeildum frumvörpum eru völdin sem fyrirtækjum og bandarísku ríkisstjórninni eru gefin, en  samkvæmt reglunum mega þau meina netverjum í Bandaríkjunum aðgangi að tilteknum vefsíðum sem þau telja að brjóti þessar tilteknu reglur.

    Með þessu er verið að setja mikla pressu á þær vefsíður sem mögulega dreifa þesskonar efni. Við erum ekki aðeins að tala um sjóræningasíður, heldur einnig síður á borð við Google, YouTube, Twitter og Facebook, þar sem ætlast er til þess að ábyrgðarmenn vefsíðanna beri ábyrgð á því sem notendur setja þar inn. Það skal tekið fram að með þessari leið verður ekki hægt að stöðva ólöglegt niðurhal, en það verður hægt að loka á allar vefsíður sem fylgja ekki reglunum um ritskoðun. Halló Kína?

    SOPA og PIPA bjóða upp á óþarfa og hættulega ritskoðun sem getur haft mjög slæmar afleiðingar í för með sér. Það eru ekki bara gamlar sem nýjar heimasíður sem eru í hættu, heldur einnig almennt tjáningarfrelsi á netinu. Netverjar um allan heim hafa vakið athygli á og gagnrýnt SOPA og PIPA og eru Wikipedia, Mozilla, Google, Facebook Tumblr, eBay og LinkedIn eru meðal þeirra fyrirtækja sem styðja mótmælin og vilja ekki sjá þessar reglur taki gildi.

    Talið er að bandaríska þingið muni fjalla um SOPA á næstu dögum eða vikum og mun PIPA fylgja í kjölfarið.
    Smelltu hér til að sjá hvað þú getur gert til að taka þátt í mótmælunum.

    Hér í lokin er að finna tvö myndbönd um efnið. Það fyrra er stutt myndband sem lýsir PIPA í hnotskurn og það seinna er 20 mínútna myndband þar sem John „TotalBiscuit Bain“ hjá Cynical Brit ræðir um mögulegar afleiðingar SOPA og PIPA.

    – BÞJ

    Heimildir: Digital Trends, Fight For The Future: PIPA, Keep The Web Open, Mozilla og Wikipedia.

     

    Bandaríkin bandaríska þingið Bjarki Þór Jónsson höfundarréttur netið pipa Protect IP Act ritskoðun sopa Stop Online Piracy Act
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaDauðinn, uppvakningar og aðrar jólamyndir
    Næsta færsla Leikjarýni: The Elder Scrolls V: Skyrim
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Out of the Loop fær uppfærslu fyrir jólin

    21. desember 2024

    Dr. Spil og Nörd Norðursins í samstarf

    26. september 2024

    SSD uppsetning í samstarfi við Tölvutek

    18. október 2021

    Leikjavarpið #26 – Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran

    13. ágúst 2021

    Ring Fit áskorun í febrúar!

    4. febrúar 2021

    Leikjavarpið #20 – Væntanlegir leikir 2021, Indiana Jones og Star Wars

    19. janúar 2021
    Nýtt á Nörd Norðursins
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable

    23. janúar 2026

    Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026

    20. janúar 2026

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    19. janúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur
    • Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu
    • Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable
    • Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026
    • Bestu tölvuleikir ársins 2025
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.