Retró

Birt þann 15. ágúst, 2011 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Tölvuleikjapersóna: Guybrush Ulysses Threepwood

Guybrush Ulysses Threepwood er aðalpersóna ævintýra leikjaseríunnar, Monkey Island, frá LucasArts. Leikarinn Dominic Armato ljáir Guybrush rödd sína í þriðja, fjórða og fimmta leiknum og einnig í endurgerð The Secret of Monkey Island og Monkey Island 2: LeChuck’s Revenge.

Nafnið „Guybrush“ er upprunnið að hluta til í forritinu Deluxe Paint, tól sem var notað af listafólkinu sem bjó karakterinn til. Þar sem að karakterinn var ekki kominn með nafn, hét skráin einfaldlega „Guy“. Þegar að skráin var vistuð, bætti Steve Purcell, maðurinn á bakvið karakterinn, „brush“ við skráarnafnið, sem átti að benda til þess að þetta var „brush skrá„ úr Deluxe Paint fyrir „Guy“ karakterinn. Þar með var skráarnafnið „guybrush.bbm“, á endanum kölluðu hönnuðurnir, þennan ónefnda „Guy“ sem „Guybrush“. Haldin var keppni innan fyrirtækisins til að finna ættarnafn fyrir Guybrush, nafnið „Threepwood“ á rætur að rekja til karaktera P. G. Wodehouse, þar með töldum Galahad Threepwood og Freddie Threepwood (hann deilir einnig ýmsum karakter einkennum með þeim).

Þegar að Guybrush birtist fyrst í The Secret of Monkey Island (1990), var hann vandræðalegur unglingur, með það eina markmið að verða sjóræningi (Monkey Island leikirnir eiga sér stað í Karabískahafinu, á skálduðum tíma; Sjóræningar í anda 17 aldar búa ásamt tímaskekktum hlutum eins og sjálfsölum sem úthluta glerflöskum fullum af rommi). Guybrush, lítur út fyrir að vera myndarlegur drengur en er í rauninni kjarklaus, vitgrannur, horaður, ljóshærður unglingur og algjörlega laus við persónutöfra. Hans helsti hæfileiki er sá að hann getur haldið niðri í sér andanum í heilar tíu mínútur og hann er mjög ólíklegur sjóræningja kandídat.

Eins og áður sagði er Guybrush söguhetja Monkey Island seríunnar sem samanstendur af; The Secret of Monkey Island (1990), Monkey Island 2: LeChuck’s Revenge (1991), The Curse of Monkey Island (1997), Escape from Monkey Island (2000) og Tales of Monkey Island (2009).

Heimild: Wikipedia (wikipedia.com, Guybrush Ulysses Threepwood)
Erla Jónasdóttir þýddi

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Skildu eftir svar

Efst upp ↑