Bíó og TV

Birt þann 19. mars, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík

Ofurhetjur, bestuvinir, rjómi evrópskra verðlaunamynda, innlendar og erlendar stuttmyndir, slökkviliðið, Sveppi og Villi og allskyns sérviðburðir auk Camera Obscura sem hægt er að fræðast um og prófa í Bíó Paradís á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík!

Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík er nú haldin í Bíó Paradís í annað sinn. Þetta er fyrsta hátíð sinnar tegundar á Íslandi en í fyrra tók Bíó Paradís á móti yfir 3000 börnum á hátíðina og ljóst er að með hátíðinni hafi verið fyllt upp í ákveðið tómarúm í barnamenningu landsmanna.

Sýndar verða áhugaverðar myndir um allt milli himins og jarðar. Leiknar myndir, teiknimyndir, heimildamyndir og stuttmyndir fyrir börn á öllum aldri auk sérviðburða í tengslum við hátíðina sem stendur yfir 20. til 30. mars.

Að þessu sinni verða 8 nýjar barnakvikmyndir sýndar auk sex erlendra og íslenskra stuttmyndapakka sem hver og einn er sérsniðinn að ólíkum aldurshópum.

Opnunarmynd hátíðarinnar að þessu sinni er ofurhetjumyndin Antboy (2013) eftir Ask Hasselbalch – og eru gestir þá hvattir til að mæta í ofurhetjubúningum! Myndin hlaut nýlega Róberts verðlaun dönsku kvikmyndaakademíunnar 2014 sem besta barnamyndin. Leiklesari aðalpersónunnar Palla er Ágúst Örn Wigum sem tilnefndur var til Eddu verðlaunanna 2014 og verður hann viðstaddur opnun Alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar þar sem gestum gefst færi á að spyrja hann út í leikaralífið eftir sýningu myndarinnar. Verndari hátíðarinnar er Vigdís Finnbogadóttir og verður hún og Jón Gnarr borgarstjóri viðstödd opnunarhátíðina sem er fimmtudaginn 20. mars.

Nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðu Bíó Pardísar.

 

Stikla úr Antboy

– Fréttatilkynning frá Bíó Paradís
Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑