Author: Nörd Norðursins

Birt af ritstjórn

Ofurnördarnir Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór hjá Nörd Norðursins ætla að taka á því í febrúar og spila Ring Fit Adventure á Nintendo Switch. Ring Fit Adventure tvinnar saman tölvuleik við líkamsrækt með skemmtilegum hætti þar sem nauðsynlegt er að skokka á milli staða og gera líkamsæfingar til að sigra óvini. Eins og sést á meðfylgjandi mynd eru strákarnir heldur betur tilbúnir í slaginn og ætla að reyna að toppa hvorn annan. Hver kemst lengst í leiknum? Hver nær að æfa meira? Ná þeir að endast út febrúar?! Hægt er að fylgjast með framgangi mála á Instagram Nörd Norðursins undir…

Lesa meira

Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta sem leikjaárið 2021 hefur upp á að bjóða. Þar finnast tölvuleikjatitlar á borð við Ratchet and Clank: Rift Apart, nýjan Resident Evil leik, The Medium, Far Cry 6, Little Nightmares II, Halo Infinite, Returnal og fleiri og fleiri. Ætli mörgum leikjum verði frestað til ársins 2022 vegna Covid? Fjallað er um fréttir af nýjum Indiana Jones tölvuleiki og nýjum Star Wars leik. Lítið er vitað um leikina að svo stöddu en nördarnir ræða málin sín á milli. Ræðum þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins! Mynd: Halo Infinite, Returnal og Far Cry…

Lesa meira

Bjarki, Sveinn og Daníel gera upp leikjaárið 2020. Farið er yfir það helsta frá Sony, Microsoft, Nintendo og öðrum tölvuleikjafyrirtækjum. Nýjar leikjatölvur komu á markað á árinu og fjölmargir flottir tölvuleikir. Í lok þáttar er tekinn saman topp fimm listi Nörd Norðursins fyrir tölvuleikjaárið 2020. Fylgist með – í næsta þætti ætlum við að skoða hvað árið 2021 mun bjóða upp á!

Lesa meira

Í átjánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel, Sveinn og Bjarki hjá Nörd Norðursins um það helsta úr heimi tölvuleikja. Við rennum stuttlega yfir það helsta úr The Game Awards 2020 tölvuleikjaverðlaununum. Bjarki spilaði fyrsta kaflann í Tell Me Why þar sem sterk trans persóna fer með aðalhlutverk og segir aðeins frá sinni upplifun á leiknum. Sveinn er búinn að vera að prufukeyra eina af fáum Xbox Series X á landinu undanfarnar vikur og segir frá helstu kostum og göllum tölvunnar og ber saman við PlayStation 5. Daníel og Sveinn spiluðu Immortals: Fenyx Rising og segja þeir frá leiknum sem tengist…

Lesa meira

Fréttatilkynning frá ÍMS: Íslenska myndasögusamfélagið (ÍMS) gefur út myndasagnabálk eftir nýjar og spennandi raddir í heimi íslenskra myndasagna. ÍMS gefur út sína fyrstu bók, myndasagnabálk eftir unga og upprennandi íslenska höfunda. Bókin er titluð ÍMS 2020 Comic Anthology („Myndasagnabálkur ÍMS 2020“). Kjarni bókarinnar er sýningarefni frá tveimur listasýningum, annars vegar finnsk-íslensku Elves at the Airport-sýningunni á Listasafni Reykjavíkur frá nóvember 2019 og hinsvegar Strange Communities-sýningunni á Reykjavik Fringe-listahátíðinni frá júlí 2020. Sögurnar byggja á þjóðsögum og furðusögum sem endurspegla íslenskt nútímalíf og -menningu. Bókin verður 68 bls. á lengd. ÍMS heldur stafrænt útgáfuhóf gegnum netið með beinu streymi á Facebook-síðu…

Lesa meira

Sveinn spilar fyrstu 80 mínúturnar í Assassin’s Creed: Valhalla frá Ubisoft. Leikurinn er sá tólfti í seríunni og arftaki Assassin’s Creed Odyssey sem fékk fjórar stjörnur af fimm mögulegum hjá okkur nördunum (lestu leikjarýnina okkar í heild sinni hér). Assassin’s Creed: Valhalla gerist á víkingaöld, nánar tiltekið árið 873, þegar víkingar gera árás á Bretland. Spilarinn stjórnar víkingnum Eivor sem flækist í deilur milli Brotherhood of Assassins og Templar Order. Leikurinn kemur í verslanir 10. nóvember 2020 fyrir PC, PS4, Xbox One, Xbox Series X/S og Stadia. PS5 útgáfa af leiknum er væntanleg 12. nóvember.

Lesa meira

Bjarki Þór spilar borðið Cooling Springs, eitt af borðum tölvuleiksins Astro’s Playroom (sem fylgir frítt með PlayStation 5) og prófar DualSense fjarstýringuna í leiðinni og segir frá henni. Fyrir ítarlegri umfjöllun á DualSense bendum við á greinina Nörd Norðursins prófar DualSense – Jákvæð þróun og skemmtilegar nýjungar sem birt var í dag.

Lesa meira

Nörd Norðursins fékk eintak af PlayStation 5 fyrir útgáfudag til að fjalla um. Í þessu myndbandi skoðar Bjarki Þór umbúðirnar og fjallar um innihaldið; PlayStation 5 leikjatölvuna, fjarstýringuna, standinn, snúrurnar og bæklingana. Útgáfudagur PlayStation 5 er 12. nóvember í Bandaríkjunum, Japan, Kanada, Mexíkó, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Suður-Kóreu. Önnur lönd fá tölvuna viku síðar, eða fimmtudaginn 19. nóvember. Ef þið eruð með einhverjar spurningar varðandi tölvuna, fylgihluti eða kassann endilega sendið okkur línu á netfangið nordnordursins(at)gmail.com eða með skilaboðum á Facebook.

Lesa meira