Author: Nörd Norðursins

Birt af ritstjórn

Sandra Rós er einn af pennum Nörd Norðursins og þekkja lesendur okkar  hana trúlega best sem höfund myndasöguseríunnar Ofvitar. Sandra fór nýlega af stað með fjármögnun á Kickstarter þar sem hún stefnir á að fjármagna nýja myndasögu um Djáknann á Myrká. Að þessu tilefni heyrðum við aðeins betur í henni Söndru og forvitnuðumst aðeins nánar um bakgrunn hennar og verkefnið. Hver er Sandra Rós? Það er ég! Hæ! – Án djóks þá er ég frá Reykjavík en bý akkurat núna í San Francisco þar sem ég er ný útskrifuð úr listaháskóla. Veit ekki hvað ég mun gera það sem eftir er lífsins…

Lesa meira

Í næstu viku verður kvikmyndin Angry Video Game Nerd: The Movie frumsýnd í Bandaríkjunum og hefur ný stikla úr myndinni litið dagsins ljós. Ofurnördið James Rolfe, eða Angry Video Game Nerd eins og hann er betur þekktur sem, hefur notið gríðarlegra vinsælda á YouTube fyrir samnefnda þætti þar sem James spilar – og pirrast mjög – yfir gömlum tölvuleikjum. Til gamans má geta þá tókum við hjá Nörd Norðursins viðtal við reiða leikjanördið í fyrra og gagnrýndum auk þess AVGN þættina á DVD. Við bendum þeim lesendum sem hafa áhuga á AVGN einnig á nokkra þætti um retroleiki sem er vert að…

Lesa meira

Jósef Karl Gunnarsson skrifar: Bresku þættirnir Life on Mars hófu göngu sína árið 2006 og úr þeim urðu tvær seríur saman settar af 8 þáttum hvor. Vinsældir þessa þátta urðu til þess að bandarísk endurgerð fór í loftið árið 2008 og fékk aðeins eina seríu saman setta af 17 þáttum. Árið 2008 kom einnig beint framhald af bresku Life on Mars þáttunum í formi Ashes to Ashes en sú þáttaröð varð ansi lífseig og komst upp í þrjár seríur. Bresku þættirnir eru klukkutími hver en þeir bandarísku eru þessar stöðluðu 42 mínútur eða svo. Rannsóknarlögreglumaðurinn Sam Tyler (John Simm) er…

Lesa meira

Hvernig ætli sætrúllurnar úr Skyrim smakkist? Ætli sítrónukökurnar séu eins góðar í raun og veru og Sansa heldur fram? Eða er áhugi fyrir því að smakka Elixir súpuna úr The Legend of Zelda? Ef svarið er já þá ætti www.geekychef.com að vera eitthvað fyrir þig! Cassandra Reeder er með frekar áhugaverða og öðruvísi heimasíðu fyrir okkur sem hafa áhuga á nördamenningu. Hún er mikill bloggari, finnst gaman að elda og hefur veri nörd alla sína ævi. Hugmyndin á bakvið Geeky Chef er að gera tölvuleikja fæði að veruleika. Allir réttir á heimasíðunni eru rækilega rannsakaðir til þess að ná hinu…

Lesa meira

Spilavinir héldu Íslandsmeistaramót í spilinu Dominion í fyrra og nú er komið aftur að því. Að þessu sinni fer mótið fram þriðjudaginn 1. júlí 2014 kl. 18:30 hjá Spilavinum, Suðurlandsbraut 48. Sigurvegarinn vinnur sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramóti Dominion sem verður á GenCon í Indiana í Bandaríkjunum í ágúst.  Á heimasíðu Spilavina er fjallað nánar um spilið og mótið: Fyrir þá sem ekki þekkja er Dominion skemmtilegt og krefjandi borðspil sem byggir á spilastokkum. Hver leikmaður byrjar með 10 spil en smátt og smátt kaupa leikmenn spil inn í stokkinn til að stækka og bæta sitt „konungsveldi“. Einn leikur af…

Lesa meira