ESA (evrópska geimstofnunin) tilkynnti að stefnt væri að tveimur geimskotum í vísindalegum tilgangi. Fyrsta geimskotið mun koma geimfari á sporbaug um sólina og hefur annað geimfar aldrei farið jafn nálgt henni hingað til. Geimfarið mun mæla sólarvinda og áhrif þeirra á plánetur í sólkerfi okkar, og þá sérstaklega jörðina. Seinna geimfarinu er ætlað að rannsaka hulduorku (Dark Energy) og þensluhraða alheimsins, en uppgötvun þessara þátta var verðlaunuð með Nóbelsverðlaunum 5. október 2011. Geimferðirnar eru kallaðar Solar Orbiter og Euclid, og eru þær flokkaðar sem miðlungs geimferðir sem ESA áætlar að eigi eftir að kosta minna en 470 milljón evra hvor.…
Author: Nörd Norðursins
Hver hefur ekki dottið inn á áhugaverða síðu á Facebook og langað til að kynna sér innihaldið betur en þá reynist síðan vera á spænsku, frönsku eða öðru tungumáli? Í náinni framtíð verður það lítið mál því Facebook eru að vinna að þýðingar möguleika sem mun geta þýtt ekki bara síðuna, heldur allar athugasemdir sem hafa verið skrifaðar. Þeir vinna að þessu verkefni í samstarfi við Microsoft Bing. Eins og með margar breytingar á samfélagsmiðlinum vinsæla þá rúlla breytingarnar hægt og rólega yfir alla notendur þannig að ekki furða þig á því ef það verður allt í einu kominn takki sem…
Fótbolti er sú íþrótt sem hefur eitt mesta fylgi allra íþrótta víðast hvar í veröldinni, og það á nú enga að síður við hér á Íslandi. Mörgum nægir það einfaldlega ekki að sjá uppáhalds liðið sitt spila einu sinni til tvisvar í viku, svo þar getur FIFA létt þeim lífið. FIFA er þó ekki bara fyrir fótbolta unnendur, þó svo að þeir séu vissulega lang stærsti hluti spilenda, heldur eru líka þó nokkuð margir sem spila leikina en horfa varla á fótbolta yfir höfuð. Þann 28. september síðastliðinn kom á markað nýjasta útgáfan af hinni sívinsælu FIFA, fótbolta-eftirhermu, tölvuleikjaseríu. Leikurinn…
Hakkarakeppni Háskóla Reykjavíkur er í fullum gangi og getur hver sem er tekið þátt í keppninni. Sigurvegarinn hlýtur hinn epíska titil: RU’S MOST LEET HACKER! Á heimasíðu keppninar er henni lýst svona: Welcome! Chances are you have come here because you are curious about how things work and what makes them tick. After all, curiosity is the essence of human existence. In the olden days, people who were inherently curious about looking under the hood of computers were called hackers. When the Internet came along, the phrase became associated with those who found exploits against Internet services, making them do unexpected…
Steve Jobs stofnandi Apple er látinn. Á heimasíðu Apple kemur eftirfarandi fram: Apple has lost a visionary and creative genius, and the world has lost an amazing human being. Those of us who have been fortunate enough to know and work with Steve have lost a dear friend and an inspiring mentor. Steve leaves behind a company that only he could have built, and his spirit will forever be the foundation of Apple.
eftir Bjarka Þór Jónsson VARÚÐ – GREININ INNIHELDUR SPILLA (SPOILERS)! – Á næstu vikum mun ég taka fyrir myndirnar í Dead-seríu Romeros þar sem ég fer yfir sögu þeirra og greini þær. Í þessari fyrstu grein er farið yfir sögu fyrstu Dead-myndarinnar, Night of the Living Dead, eftir George A. Romero. Að sögu lokinni dembum við okkur í greininguna. HORFA Á MYNDINA Hægt er að horfa á myndina í heild sinni ókeypis hér á YouTube. SAGAN Systkinin Barbra (Judith O‘Dea) og Johnny (Russell Streiner) fara að leiði föður síns. Skyndilega ræðst fölur maður (uppvakningur) á Barbrö og kemur Johnny…
Apple hélt blaðamannafund í kvöld – sem hófst kl. 17 á íslenskum tíma – og voru miklar væntingar fyrir fundinn um að Apple myndi kynna nýjan iPhone 5 farsíma. Það urðu margir fyrir vonbrigðum þegar einhver snillingur hjá Apple í Japan birti upplýsingar um nýja iPhone 4S síma á heimasíðunni áður en blaðamannafundurinn hófst. Svo að lang flestir vissu að enginn iPhone 5 væri á leiðinni á næstunni. Vel gert, fyrrverandi starfsmaður Apple! Fyrsti klukkutími fundsins fór í að segja frá því hversu góðir Apple eru í sýnu fagi – fremstir á fararbroddi á mörgum sviðum, en Apple er meðal…
Við rákumst á skemmtilega grein sem birtist í Tímanum árið 1984 um lúsafaraldur meðal tölvuleikjaspilara þar sem norska tímaritið Ingenieren skýrir frá tengslum lúsa og spilun tölvuspila: Hér á landi koma stundum upp lúsafaraldrar og sýnist langt því frá að óværunni hafi verið útrýmt hér á landi þrátt fyrir aukið hreinlæti. En það er víðar lús en á íslandi. Í Noregi er þetta langt frá því að vera óþekkt og birtum við hér litla grein úr Frey, sem skýrir sambandið milli tækni og lúsa. Vasatölvuspil hafa breiðst ört út meðal skólabarna í Noregi svo að til vandræða horfir að því er norska…
Síðastliðið miðvikudagskvöld kom FIFA 12 leikurinn loksins í verslanir hérlendis, en í tilefni þess ákvað Skífan að halda risastórt FIFA mót. Hver sem er gat skráð sig svo framarlega sem hann hafði forpantað leikinn í verslunum Skífunnar. Mótið hófst á slaginu þrjú, með leik á milli engra annarra en Steinda Jr. og Friðrikis Dórs, sá leikur var heldur einhliða þar sem Friðrik Dór var ekki í neinum vandræðum með hann Steinda… Mótið hófst á slaginu þrjú, með leik á milli engra annarra en Steinda Jr. og Friðrikis Dórs, sá leikur var heldur einhliða þar sem Friðrik Dór var ekki í…
Það helsta í október 2011! 7. október – Rage 7. október – Dark Souls 7. október – NBA 2K12 14. október – Forza Motorsport 4 14. október – Dead Rising 2: Off the Record 21. október – Batman: Arkham City 28. október – Battlefield 3 – BÞJ