Author: Bjarki Þór Jónsson

RÚV mun frumsýna Nörd í Reykjavík, nýja íslenska þáttaröð þar sem Dóri DNA mun dýfa tánum í hinn undurfagra töfraheim íslenskrar nördamenningu. Fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld, fimmtudaginn 14. mars, kl. 20:00. Þættirnir verða í framhaldinu á dagskrá á sama tíma vikulega næstu fimm vikurnar. Í fyrsta þætti mun Dóri kynna sér LARP menninguna, en auk þess mun hann kynna sér cosplay, Miðgarð nördaráðstefnuna, rafíþróttir og fleira í komandi þáttum Hægt er að sjá brot úr fyrsta þætti Nörd í Reykjavík hér á RUV.is. Mynd: Skjáskot úr fyrsta þætti

Lesa meira

Origo bauð upp á umræður um rafíþróttir í dag í tengslum við UTmessuna sem hefst formlega á morgun. Áður en umræður hófust kynnti Gallup nýjar tölur varðandi tölvuleikjaspilun Íslendinga, en þetta er í fyrsta sinn sem slík könnun hefur verið lögð fram með formlegun hætti og því ekki hægt að bera þessar nýju tölur með beinum hætti við niðurstöður eldri kannana. Niðurstöður Gallup sýna að 66% Íslendinga sem hafa náð 18 ára aldri spila tölvuleiki, en 41% Íslendinga á sama aldri spila tölvuleiki reglulega, það er að segja einu sinni í viku eða oftar. Hér fyrir neðan er að finna…

Lesa meira

Brynjólfur Erlingsson stofnaði Facebook-hópinn Tölvuleikir – Spjall fyrir alla fyrir um þremur vikum síðan og telur Facebook-hópurinn um 560 meðlimi í dag. Um þessar mundir stendur hópurinn fyrir styrktarsöfnun fyrir Kvennaathvarfið. Til eru nokkrir íslenskir tölvuleikjaumræðuhópar á Facebook og spurðum við Brynjólf hvað varð eiginlega til þess að hann ákvað að stofna þennan nýja hóp? „Ég stofnaði hópinn einn en hafði fengið áskoranir frá fólki sem ég þekki í leikjaiðnaðinum. Ég ræddi við nokkra vini og ákvað að líklega væri best að bíða ekki eftir því að einhver annar gerði þetta og hella mér bara út í þetta sjálfur. Ég er…

Lesa meira

Stjórnendur hópsins Tölvuleikir – Spjall fyrir alla á Facebook hafa hleypt af stað söfnun til styrktar Kvennaathvarfsins. Söfnunin hófst fyrir um viku síðan og lýkur á miðnætti sunnudaginn 16. desember mánudaginn 17. desember. Stjórnendahópur Tölvuleikir – Spjall fyrir alla höfðu samband við Kvennaathvarfið og fengu upplýsingar um að yfir 100 börn dvelja hjá athvarfinu ár hvert og skortur sé á afþreyingu fyrir þessi börn. Í framhaldinu var ákveðið að safna fyrir leikjatölvum og tölvuleikjum til að gefa Kvennaathvarfinu. Upp eru strax komin plön um að gera þetta að árlegum viðburði og stofna jafnvel samtök í kringum þetta í anda Child’s…

Lesa meira

Emil Hjörvar Petersen rithöfundur stofnaði áhugaverðan þráð á Tölvuleikjasamfélaginu á Facebook fyrr á þessu ári þar sem hann leggur til að notaðir séu íslenskar þýðingar á titlum tölvuleikja. Þráðurinn náði miklum vinsældu hefur tölvuleikjasamfélagið komið með fjöldann allan af skemmtilegun þýðingum á þekktum tölvuleikjatitlum. Emil Hjörvar leggur til meðal annars til að Elder Scrolls verði héðan í frá betur þekkt sem Öldungabókrollur á íslensku, Far Cry fær þýðinguna Óp í fjarska og Grand Theft Auto fær heitið Stófenglegur bifreiðaþjófnaður. Lítum á nokkur fleiri skemmtileg dæmi úr þessum umræðuþræði. Við hvetjum svo skapandi lesendum til að deila með okkur skemmtilegum þýðingum á…

Lesa meira

Leikjasamfélagið Game Makers Iceland stendur fyrir röð kynninga á íslenskum leikjafyrirtækjum. Að þessu sinni munu leikjafyrirtækin Myrkur Games og Aldin kynna starfsemi sína og verkefni. Kynningarnar hefjast kl. 19:00 í kvöld, þann 19. september, í Innovation House (Eiðistorgi) og eru opnar öllum sem hafa áhuga á því að kynnast íslensku leikjasenunni betur. Halldór S. Kristjánsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Myrkur Games mun fjalla um The Darken, sem er ný leikjasería sem fyrirtækið vinnur að um þessar mundir. Fyrirtækið hefur meðal annars fjárfest í motion capture búnaði sem verður notaður við gerð leiksins. Í leiknum The Darken fer spilarinn með hlutverk hetjunnar…

Lesa meira

Midgard er fyrsta íslenska ráðstefnan í anda Comic-Con þar sem nördar koma saman víðsvegar að til að hlusta á fyrirlestra, hitta persónur úr nördaheiminum, klæða sig upp í cosplay-búninga, spila og hitta annað fólk með svipuð áhugamál. Á morgun hefst Midgard ráðstefnan í Laugardalshöll og stendur yfir alla helgina. Midgard er fyrsta íslenska ráðstefnan í anda Comic-Con þar sem nördar koma saman víðsvegar að til að hlusta á fyrirlestra, hitta persónur úr nördaheiminum, klæða sig upp í cosplay-búninga, spila og hitta annað fólk með svipuð áhugamál. Fjölbreytt dagskrá er í boði. Hægt verður að fylgjast með víkingabardaga, taka þátt í…

Lesa meira

Undanfarið eitt og hálft ár hafa PlayStation VR sýndarveruleikagleraugun lækkað verulega í verði hér á landi. Upphaflega kostaði græjan í kringum 65-70.000 krónur í íslenskum verslunum en verðið lækkaði fljótlega niður í 50.000 kr, í kjölfar tollalækkana hér á landi árið 2017. Í dag eru verslanir farnar að bjóða upp á sérstaka PlayStation VR pakka sem innihalda sýndarveruleikagleraugun ásamt PlayStation myndavél, tölvuleiknum VR Worlds og í sumum tilfellum PlayStation Move pinna sem eru nauðsynlegir til að spila suma PlayStation VR leiki. Pakkarnir kosta í kringum 55-60.000 kr. og má því segja að sýndarveruleikagleruaugun sjálf hafi lækkað eitthvað í verði þar…

Lesa meira

Ingvi Steinn Steinsson Snædal er 32 ára gamall Austfirðingur sem starfar hjá danska leikjafyrirtækinu ThroughLine Games sem gerði ævintýraleikinn Forgotton Anne sem kom í verslanir í seinasti mánuði fyrir PC, PlayStation 4 og Xbox One. En hvernig kom til að Austfirðingurinn endaði í tölvuleikjabransanum í Danmörku? Ingvi segist sjálfur hafa spilað tölvuleiki sem krakki og ólst þá upp við DOS, NES og PS leikina á níunda og tíunda áratugnum. Leikir á borð við Secret Agent, Hocus Pocus og Jazz Jackrabbit, ásamt söguríkari leikjum eins og Broken Sword, Baldur‘s Gate og Diskworld kveiktu á áhuga hans um að sækjast eftir framtíð…

Lesa meira

Nú er rétti tíminn fyrir okkur nördana til að gera góð kaup. Nokkrar spennandi sumarútsölur eru við það hefjast eða nú þegar hafnar. Helst bera að nefna hina árlegu Nexus útsölu sem hefst mánudaginn 2. júlí á slaginu 10:00 þar sem hægt er að gera góð kaup á spilum, bókum, teiknimyndasögum, kvikmyndum, fatnaði, fígúrum o.fl. í aðalverslun þeirra, Nóatúni 17. Verslunin lofar vel lækkuðu verði þar sem ekkert er á minna en 30% afslætti og eiga að vera margir hlutir sem verða á enn hærri afslætti. Gera má ráð fyrir röð fyrir framan verslun Nexus þegar verslunin opnar þar sem…

Lesa meira