Eitt af verst geymdu leyndarmálum leikjabransans síðustu árin verður loksins staðfest þann 23. Apríl næstkomandi. Þá mun útgefandinn Ubisoft loksins staðfesta upplýsingar um endurgerð eða endurbættu útgáfuna af Assassin’s Creed IV: Black Flag.
Það verður heims kynning á leiknum sem heitir núna Assassin’s Creed: Black Flag – Resynced.
Kynningin verður kl. 9 að Bandarískum tíma eða um 16:00 að Íslenskum tíma. Ubisoft staðfesti loksins þennan orðróm í Mars á þessu ári sem hluta af stærri umræðu um Assassin’s Creed seríuna og framtíð hennar.
AC: Black Flag – Resynced mun líklega koma út þann 9. Júlí á þessu ári fyrir helstu leikjatölvur og PC vélar.
Orðrómar eru um að leikurinn muni sleppa nútíma hluta leiksins í stað þess að fylla út í sjóræningja sögu hluta leiksins, einnig eiga að vera endurbætur á spilun leiksins og fleiri viðbætur. Hvað af þessu mun reynast rétt ætti að koma í ljós síðar í vikunni þegar að Ubisoft loksins staðfestir leikinn og nánari upplýsingar um hann.
Heimild: Ubisoft og Gamespot
