Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia – nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Samsett mynd: Pokopia / Crimson Desert
