Bjarni Ólafsson skrifar:
Skipuleggjendur StarCraft hátíðarinnar ræddu málin við Jökul Jóhannsson, einnig þekktur undir skjánafninu: Kaldi. Hann er eini Íslendingurinn sem hefur orðið atvinnumaður í herkænskuleikjum. Hann sló í gegn í StarCraft II, síðar í Hearthstone og starfar í dag sem framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands.
Við stikluðum á stóru með Kalda og fórum yfir tölvuleikjaferil hans:
„Ég hef spilað RTS frá sjö ára aldri og man vel eftir fyrsta leiknum, Dune 2000,“ segir Jökull. Áhuginn á Blizzard-leikjum byrjaði þó síðar þegar hann spilaði með vinum sínum WarCraft 3 til gamans, en þá lá beinast við að prófa StarCraft II þegar hann kom út árið 2010.
Öflug íslensk StarCraft-sena
Jökull segir að: „senan á Íslandi var einstaklega sterk. Ég var lengi vel varla í topp tíu. Þórir Viðarsson (TurboDrake) og Bergur (wGbNykur) voru fljótir að koma upp sterkum liðum. Talsverð keppni myndaðist á milli liðanna Drake og wGb. Mjög góð stemmning almennt og mikið af viðburðum.“
Þegar mest lét voru fjórir Íslendingar meðal 200 bestu spilara Evrópu, sem verður að teljast afrek miðað við stærð landsins.
Meðal sterkustu spilarana sem hann þurfti að vara sig á voru Sigurður (wGbDanger) og Daníel (Chrobbus). En Chrobbus fór frekar snemma í topp 200 í Evrópu í hina svokölluðu Grandmaster-deild. Jökull og Stefán (Shake) fylgdu svo í kjölfarið. Þegar mest lét voru fjórir Íslendingar meðal 200 bestu spilara Evrópu, sem verður að teljast afrek miðað við stærð landsins.

Eftirminnileg einvígi
Aðspurður um eftirminnilegar rimmur segir hann að: „Sætustu sigrarnir voru gegn Kóreubúum og þar stendur leikur gegn Hero upp úr.“ En Hero hefur unnið til fjölda verðlauna og spilað fyrir Suður-kóreska rafíþróttastórveldið CJ Entus. Einnig spilaði Jökull gegn einni af þekktustu StarCraft-goðsögn Kóreu fyrr og síðar, sjálfum Jaedong. Jaedong nýtur gríðarlegrar virðingar í Kóreu og er þekktastur fyrir langan og glæstan feril í StarCraft Brood War, en hann reyndi líka fyrir sér í StarCraft II með prýðilegum árangri. „Þó leikurinn gegn Jaedong hafi nú tapast var það mikill hápunktur á ferlinum,“ segir Jökull. Þegar kemur að íslenskum leikjum telur hann eftirminnilegastan vera leikur gegn Stefáni (Shake), þar sem þeir háðu fimm leikja einvígi til úrslita í HRingnum 2013.
Sætustu sigrarnir voru gegn Kóreubúum og þar stendur leikur gegn Hero upp úr.
Jökull Jóhannsson
Atvinnumennska gerist ekki á einni nóttu
Jökull lýsir því sem stóru skrefi þegar hann fór oftar að vera paraður gegn þekktum atvinnumönnum á netinu. „Það tók nokkra æfingu að ná að spila eðlilega og útiloka hugsunina um að vera gegn einhverjum sem maður vissi að væri atvinnumaður og líklega að streyma leiknum til hundruða eða þúsunda í beinu streymi. Það tók æfingu að vinna þannig leiki.“ Í slíkum leikjum hallaðist hann fyrst að því að setja allt undir í áhættusömum árásum, en með tímanum lærði hann að spila varkárari og lengri leiki þar sem hæfileikarnir fengu að njóta sín. Þegar þetta byrjaði að ganga var Kalda boðið í lið og fékk tækifæri til að fara út og spila. Erlendis kynntist hann fólki sem rak liðshús í Sviss, þar sem allir stunduðu rafíþróttir sem atvinnu og var honum boðið að flytja þangað.
Kaldi í dag
Eftir að ferlinum lauk árið 2015 hóf hann að starfa við fjármál, en fyrir tveimur árum kallaði rafíþróttaheimurinn hann aftur til sín og í dag er hann framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ). „Það er skemmtilegt að fá að starfa aftur við rafíþróttir. Ánægjulegt að geta þar nýtt reynslu af fjármálum og rafíþróttum í sama starfi.“
Það er skemmtilegt að fá að starfa aftur við rafíþróttir. Ánægjulegt að geta þar nýtt reynslu af fjármálum og rafíþróttum í sama starfi.
Jökull Jóhansson
Þó atvinnumennskan sé liðin tíð fiktar hann enn við Hearthstone af og til. Hann prófaði sig líka áfram í herkænskuleiknum (RTS) Stormgate sem hefur verið í opinni betaprufun. „Sá leikur var mjög skemmtileg tilbreyting, maður er þó með aðeins hægari hendur en maður var með 2012,“ segir Kaldi og brosir.
Kaldi ætlar að kíkja við á StarCraft hátíðinni sem fer fram á laugardaginn 7. mars. Frekari upplýsingar um viðburðinn má nálgast á Facebook síðu viðburðarins „StarCraft Festival 2026“.

Myndir: Birtar með leyfi Kalda
