Tölvuleikjafyrirtækið CCP Games kynnti verkefnið „The Blood Tome – The Capsuleer Edda“ í gær þar sem saga EVE Online verður rituð með blóði úr spilurum leiksins. Áhugasömum spilurum gefst tækifæri til að gefa lítinn skammt af blóði sem verður blandað við blóð annara spilara og notað sem blek við ritun handrits, eða svokallaðrar „blóðbókar“, sem inniheldur sögu EVE Online.
„Í yfir tuttugu ár hefur EVE Online virkað sem samfélag sem er drifið áfram af spilurum. Varanlegur heimur þar sem hagkerfi, bandalög, stríð, svik og orðspor hafa áhrif yfir lengri tíma,“ sagði Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP Games. „Hjá mörgum spilurum verða mörkin óskýr á milli áhugamáls og raunverulegrar upplifunar. Fyrirtæki (e. corperations) verða að samfélögum. Átök verða að sameiginlegum minningum. Ákvarðanir sem voru teknar fyrir áratug bergmála ennþá um New Eden. Slík áhrif sem eru varanleg eru sjaldgæf í stafrænum heimum. Þess vegna leggjum við okkur fram með þessum hætti til að halda EVE á lífi að eilífu. Alheimurinn hefur dýpt, samfélagið tekur honum alvarlega, og sagan er raunveruleg vegna þess að skuldbindingin á bak við hana er raunveruleg.“ [þýðing á enskum texta – sjá upprunlegan texta á CCPGames.com]
Blóðbókin mun innihalda ritningar sem verða skrifaðar á kálfaskinn með einstakri aðferð við blekagerð og táknrænni þáttöku EVE Online spilara. Handritin eru hugsuð með það í huga að þau eiga að verðveitast til lengri tíma. Tvær blóðbækur, eða handrit, eru fyrirhugaðar. Önnur bókin er ætluð til varanlegrar varðaveislu hjá stofnun og önnur verður til sýnis á söfnum og sýningum.
Að lokum verður blóðinu blandað saman og þar með DNA þeirra EVE Online spilara sem taka þátt. Blóðið verður svo notað sem blek til að rita sögu EVE Online.
Í fréttatilkynningu frá CCP Games kemur fram að sérfræðingar á sviði líffræði leiða verkefnið sem var þróað af fagfólki úr læknavísindum og undir siðferðilegri leiðsögn þeirra. Tekið verður lítið blóðsýni úr einum fingri þátttakennda á EVE Fanfest 2026 þar sem þjálfað starfsfólk verður á staðnum og fagfólk með yfirsýn. Sótthreinsunar-, söfnunar- og meðferðarferlið verður framkvæmt af deCODE. Að lokum verður blóðinu blandað saman og þar með DNA þeirra EVE Online spilara sem taka þátt. Blóðið verður svo notað sem blek til að rita sögu EVE Online.
Mynd: EVEOnline.com
