Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir – FABLE!
Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum!
Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026, þau mistök eru plástruð í lok þáttar.
Ást, friður og tölvuleikir! 👾
Forsíðumynd (samsett): God of War Wiki (Thor) og 2) Fable á Steam
