Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Retró»RetroUSB kynnir nýjan og glæsilegan NES klón
    Retró

    RetroUSB kynnir nýjan og glæsilegan NES klón

    Höf. Kristinn Ólafur Smárason11. maí 2016Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    RetroUSB er þekkt fyrirtæki meðal Retro tölvunörda fyrir bæði framleiðslu á leikjum og margskonar íhlutum fyrir gamlar leikjatölvur. Fyrir stuttu kynnti fyrirtækið að þeir munu gefa út nýja NES klóntölvu sem gengur undir heitinu AVS. AVS mun ekki notast við hermitækni (emulation) eða lélegar NOAC lausnir eins og flestir klónar samtímans, heldur er hún samsett úr svipuðum tölvuíhlutum og gamla NES tölvan nýtti. AVS mun geta spilað alla NES og Famicom leiki, og mun geta tengst öllum þeim gömlu aukahlutum sem komu út fyrir þær tölvur á árum áður, til að mynda Famicom Disk System viðbótinni sem flestir klónar hafa hingað til ekki getað tengst. Með tölvunni verður hægt að fá þráðlausan stýripinna og einnig mun RetroUSB meðfram útgáfu tölvunnar gefa út nokkra nýja Homebrew leiki.

    AVS4

    Rúsínan í pylsuendanum er að AVS mun styðja HDMI tengingu við sjónvörp og því geta notendur hennar spilað gömlu leikina í allt að 720p upplausn, en munu þó geta valið um að tóna grafíkina niður ef nostalgían kallar á það. AVS mun kosta 185$, eða um 23.000kr miðað við núverandi gengi. Það er nokkuð dýrara en Retron5 sem er sennilega frambærilegasta klóntölvan á markaðnum í dag, en á móti kemur að sú klóntölva notast við hermitækni og getur ekki spilað allra flóknustu leikina.

    Það verður spennandi að fylgjast með hvort RetroUSB geti staðið við alla eiginleika AVS, en tölvan er væntanleg á markað í sumar.

    8bit AVS Famicom Homebrew NES nintendo Retron5 RetroUSB
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaSpilaðu sem „Dabbi kóngur“ í nýjum Pac-Man leik
    Næsta færsla Civilization VI á leiðinni
    Kristinn Ólafur Smárason

    Svipaðar færslur

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026

    CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl

    21. apríl 2026

    Ubisoft opinberar loksins AC Black Flag Resynced

    21. apríl 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026
    Leikjarýni
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.
    • Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí
    • Ókeypis myndasögudagurinn í dag!
    • Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam
    • Walk of Life kominn út!
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.