Íslenskt

Birt þann 26. febrúar, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Róbotar og ferðalag um alheiminn á Háskóladeginum 1. mars

Á hinum árlega Háskóladegi, sem fer fram laugaraginn 1. mars 2014, kynna háskólar landsins námsframboð sitt. Auk þess verður hægt að spjalla við nemendur og kennara um allt sem viðkemur náminu. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Róbotar, loftbílar og sýndarheimar í HR

Nemendur tölvunarfræðideild leggja fyrir verkefni úr Forritunarkeppni framhaldsskólanna, sýna verkefni í sýndarheimum og rannsóknir á tölvuleikjahönnun meðal annars. Nemendur tækni- og verkfræðideildar kynna loftbíla, róbota og þrívíddarprentun ásamt fleiru. Verkið Calmus Automata, sem er samstarfsverkefni HR og Listaháskóla Íslands, verður flutt en um er að ræða byltingarkennda nýjung í hugbúnaði sem semur og spilar tónlist á rauntíma með aðstoð gervigreindar. Hljómsveitin Vök tekur nokkur lög og Vísinda-Villi gerir tilraunir og margt, margt fleira. Einnig verður kynning á leikjunum úr Game Creator-keppninni, en úrslit keppninnar verða kynnt sama dag.

Dagskrá HR má nálgast hér í heild sinni.

Vísindasmiðja og ferðalag um alheiminn í HÍ

Háskóli Íslands býður einnig upp á sérstaka dagskrá í tilefni dagsins. Þar má meðal annars nefna japanskan pop-culture dans, kynningu á kappakstursbíl stúdenta og ferð um alheiminn í Stjörnuverinu í Öskju, sem er sýndarheimur þar sem hægt er að ferðast um alheiminn. Einnig verður boðið upp á grillaðar pulsur, Sprengjugengið mætir á svæðið og vísindasmiðjan fyrir alla fjölskylduna.

Dagskrá HÍ má nálgast hér í heild sinni.

Fleiri skólar verða með kynningar og dagskrá á Háskóladeginum og má finna nánari upplýsingar á heimasíðu skólanna og á haskoladagurinn.is. Þess ber að geta að fríar rútuferðir verða í boði á milli HÍ, HR og LHÍ.

-BÞJ
Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑