Birt þann 6. nóvember, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Spilarar EVE Online á Íslandi hittast í höfuðstöðvum CCP
Fimmtudagskvöldið 7. nóvember býður CCP spilurum EVE Online og öðrum áhugasömum til spilara-samkomu í höfuðstöðvum sínum við Grandagarð 8.
Á samkomunni verður EVE: The Second Decade Collector’s Edition viðhafnarútgáfan af EVE Online, sem gefin er út í tilefni af tíu ára afmæli leiksins, til sýningar og sölu. Væntanleg viðbótarútgáfa við EVE Online, Rubicon, verður kynnt- og rætt um leikinn DUST 514 sem kom út fyrr á árinu fyrir PS3 leikjavélar SONY. CCP mun einnig gefa nokkur eintök af EVE Online viðhafnarútgáfunni – og það er aldrei er að vita nema heimsveldin fjögur sem eigast við í leiknum verði með útsendara sína á staðnum.
· Starfsmenn CCP bjóða jafnframt upp á spjall um heima og geima.
· Boðið verður upp á léttar veitingar í föstu og fljótandi formi.
· Plötusnúður leikur lög og heldur uppi stuðinu.
Spilara-samkoman fer eins og áður sagði í höfuðstöðvum CCP, Grandagarði 8, 101 Reykjavík – á 4. og efstu hæð hússins.
Kvöldið hefst klukkan 19.30 og stendur samkoman fram til klukkan 23:00.
Enginn aðgangseyrir og 18 ára aldurstakmark.