Í gær var Developer Direct leikjakynningu streymt á YouTube-síðu Xbox. Í kynningunni voru nokkur valin leikjastúdíó fengin til að kynna leikina sína sem eru allir væntanlegir síðar á þessu ári. Fjallað var um kappakstursleikinn Forza Horizon 6 frá Playground Games, hasar- og hlutverkaleikinn Beast of Reincarnation frá Game Freak og partýleikinn Kiln frá Double Fine. Viðburðinum lauk með kynningu á ævintýraleiknum Fable sem margir hafa beðið eftir með eftirvæntingu og var meðal annars fjallað um í Leikjavarpinu þar sem farið var yfir væntanlega leiki fyrir árið 2026.
Á E3 árið 2018 var nefnt að fyrirtækið Playground Games, sem er hvað þekktast fyrir Forza Horizon kappakstursleikina, væri að vinna að gerð Fable. Árið 2020 birtist stutt kitla úr Fable á Xbox leikjakynningu og í framhaldinu var tilkynnt að leikurinn væri væntanlegur. Til stóð að gefa leikinn út árið 2025 en ákveðið var að fresta útgáfu leiksins sem er nú væntanlegur haustið 2026 á PlayStation 5, PC og Xbox.

Fable er vel þekkt leikjasería sem á rætur sínar að rekja til Lionhead Studios sem þróaði fyrsta leikinn sem kom út árið 2004. Þetta er í fyrsta sinn sem Playground Games þróar Fable-leik en það litla sem sýnt var úr honum lofar góðu. Leikjahönnuðir Playground Games segjast vilja halda í það sem gerir Fable-leiki eftirminnilega – leikjaheim og umhverfi sem býður spilurum tækifæri til að fara sínar eigin leiðir og skapa sitt eigið ævintýri.
Leikjahönnuðir Playground Games segjast vilja halda í það sem gerir Fable-leiki eftirminnilega – leikjaheim og umhverfi sem býður spilurum tækifæri til að fara sínar eigin leiðir og skapa sitt eigið ævintýri.
Í Fable verður að finna opinn ævintýraheim þar sem hægt verður að kanna snemma í leiknum. Spilarinn fær að taka fjölmargar ákvarðanir sem eiga að móta ævintýrið og gera upplifunina persónulega. Ákvarðanir geta verið stórar sem smáar og geta mjög stórar ákvarðanir jafnvel breytt leikjaheiminum það sem eftir lifir leiksins.
Í Albion (heiminum í Fable) verður svo að finna fjölda bæja, borga, svæða, fallega náttúru og drungaleg svæði. Í aðalborg leiksins verða eitt þúsund mismunandi karakterar sem hver hefur sína eigin baksögu, sinn eigin persónuleika og sína eigin rútínu yfir daginn. Hægt verður að eiga samtöl við alla þessa karaktera og hafa áhrif á gang mála með einum eða öðrum hætti. Til að mynda er hægt að skella sér í ævintýri þar sem spilarinn þarf að berjast við beinagrindur og ýmsar furðuverur. Einnig verður hægt að vinna sér inn pening í borginni og safna fyrir húsi. Stofna ný ástarsambönd, eignast börn og fleira. Ákvarðanir þínar í leiknum hafa í kjölfarið áhrif á mannorð þitt og mótar skoðanir fólks á þér.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá nýjasta sýnishornið úr Fable.
Myndir: Fable á Steam
