Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Bíó og TV»Svartir Sunnudagar snúa aftur með tvöfaldar sýningar
    Bíó og TV

    Svartir Sunnudagar snúa aftur með tvöfaldar sýningar

    Höf. Nörd Norðursins12. október 2014Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Svartir Sunnudagar snúa aftur í vetur með tvöfaldar sýningar en þeir hefja leikinn sunnudaginn 12. október, en þá verða Barbarella og Danger: Diabolik á dagskrá. Þeir Hugleikur Dagsson og Sigurjónarnir tveir, Kjartansson og Sigurðsson (Sjón) er stofnuðu kult og klassík hópinn Svarta sunnudaga, munu standa fyrir kvikmyndasýningum í Bíó Paradís í vetur. Síðasti vetur gekk vonum framar, þar sem fjöldinn allur mætti á mjög fjölbreytta og beitta dagskrá sem í boði var.

    Hægt er að fylgjast með dagskrá Svartra Sunnudaga á heimasíðu Bíó Paradísar og Facebook-síðu Svartra Sunnudaga.

    Dagskráin er með örlitlu breyttu sniði í vetur en Svartir Sunnudagar hefja leikinn þann 12. október með tvöfaldri sýningu og eru annars fyrsta sunnudag hvers mánaðar með tvöfalda sýningu kl 20:00 og kl 22:00, auk tvöfaldrar jólasýningar þann 26. desember og tvöfaldrar lokasýningar sem jafnframt verður plakatasölusýning vorið 2015. Fyrir hverja tvöfalda sýningu sjá nýir listamenn um plakatahönnun Svartra Sunnudaga, og er sölusýning þeirra plakata síðastliðins veturs aðgengileg í innra rými Bíó Paradís. Fyrir þeim félögum vakir að auðga bíómenningu borgarinnar og njóta lífsgæðanna sem felast í því að klassískar kult myndir séu sýndar í reykvískum bíósal – með tvöföldum sýningum í hvert sinn.

     

    BARBARELLA

    Í framtíðartryllinum Barbarella, glímir ofur kynæsandi kona við það verkefni að stoppa hin illa Durand- Durand. Á leið sinni hittir hún marga skringilega karaktera. Jane Fonda sem Barbarella, ekki missa af Svörtum Sunnudögum þann 12. október, myndin er sýnd kl 20:00.

     

    DANGER: DIABOLIK

    Ofurþjófur á í fullu fangi með að stela skartgripum, gulli ásamt því að myrða saklaust fólk. Diabolik og Eva kærastan hans búa í James Bond-legu neðanjarðarbyrgi, synda um í peningum og stela öllu steini léttara án samviskubits. Ekki missa af Svörtum Sunnudögum þann 12. október en myndin er sýnd kl 22:00.

     

     – Fréttatilkynning frá Bíó Paradís

    Bíó Paradís svartir sunnudagar
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færsla11 nýlegir norrænir leikir sem þú verður að prófa
    Næsta færsla Ofvitar #25 – Ferkantur
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl

    21. apríl 2026

    Leikjadjamm á Húsavík 17.-18. apríl

    12. apríl 2026

    Samtal um skapandi ferli tölvuleikja 8. apríl í CCP Games

    7. apríl 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026
    Leikjarýni
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.
    • Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí
    • Ókeypis myndasögudagurinn í dag!
    • Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam
    • Walk of Life kominn út!
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.