Birt þann 3. apríl, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Herjólfur Simulator 2014 og fleiri aprílgöbb
Fyrsti apríl var í gær og fylltist internetið af allskyns aprílgöbbum. Við hjá Nörd Norðursins töldum lesendum trú um að við værum að opna nýja áskriftar sjónvarpsstöð, NNTV, sem væri borguð með Auroracoin.
Hér er samansafn af nokkrum skemmtilegum aprílgöbbum þetta árið.
Google Maps: Pokémon Challenge
HALF-LIFE 4!!!!111!!!!
Blizzard Outcasts: Vengeance of the Vanquished
Blizzard kynnti nýjan leik í anda Mortal Kombat ásamt stjórntæki dauðans á síðunni www.eu.blizzard.com/en-gb/games/outcasts
Elko: Herjólfur Simulator 2014
Lýsing á vöru: „Sigldu með farþega og bifreiðar í glænýjum íslenskum hermir. Spilari þarf bæði að sjá um siglingar skipsins og reka fyrirtækið sjálft. Spilari þarf þar að taka á erfiðum málum þar sem viðfangsefnin eru meðal annars ónýtar hafnir, verkföll, yfirvinnubönn, óánægðir farþegar, uppreisn skipsverja og margt fleira. Hefur þú það sem þarf til að komast með farþega á þjóðhátíð?“ Hægt er að skoða vöruna og skjáskot hér á Elko.is.
Elko: WorldFood 3D matarprentari
Lýsing á vöru: „Framtíðin er hér – 3D matarvælaprentarinn er lentur í Elko. Með þessum prentara er hægt að prenta út matvæli hvort sem er heilu máltíðirnar eða bara einstök hráefni. Með hverri prentun sendir prentarinn fullkomna og ítarlega næringar innihaldslýsingu beint í snjallsíma notandans þannig að mjög auðvelt er að halda utan um matardagbók.“ Hægt er að skoða vöruna og skjáskot hér á Elko.is.
Samsung: Fli-Fy
Dúfur notaðar til að bjóða upp á þráðlaust net í London
YouTube: #newtrends
Klukkið á víst að verða heitara en plankið!
reddit: headdit
Reddit býður upp á nýja leið til að vafra um reddit síðuna…
HTC: Gluuv
Tengt efni: Lyktandi leitarvél og fleiri aprílgöbb
Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
ritstjóri Nörd Norðursins.