Íslenskt

Birt þann 16. maí, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Spurt og spilað: Sölvi Tryggvason

Í liðnum Spurt og spilað forvitnast Nörd Norðursins um tölvuleikjaspilun þjóðþekktra einstaklinga með stuttum spurningum. Að þessu sinni  er viðmælandi okkar Sölvi Tryggvason.

Sölvi hefur starfað sem fjölmiðlamaður í tæpan áratug og hefur meðal annars starfað sem fréttamaður hjá Stöð 2, fréttalesari og þáttastjórnandi hjá Stöð 2 og Skjá Einum. Sölvi útskrifaðist með BA í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og er hálfnaður með MA nám í blaða- og fréttamennsku í sama skóla.

 

Hverskonar tölvuleiki spilaru helst?

- Ég spila ekki marga tölvuleiki og hef á síðari árum eiginlega bara spilað fótboltaleiki, sérstaklega Manager leiki.


 

Uppáhalds tölvuleikur?

- Football Manager (áður Championship Manager).

 

Fyrsta leikjatölvan?

- Nintendo 64

 

Uppáhalds leikjatölvan?

- Fyrrnefnd Nintendo er eina leikjatölvan sem ég hef átt.
BÞJ
Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑