Fleira tengt Xbox One
Author: Nörd Norðursins
Enn einn Pokémon leikur og enn ein ferð sem spilarar þurfa að leggja í til að verða þeir bestu og ná að fanga öll vasaskrímslin. Núna fær leikjaserían að njóta sín í Nintendo 3DS vélinni og lítur leikurinn alveg ótrúlega vel út. Stóra spurningin er samt hvort þetta sé nóg fyrir seríu sem er búin að vera í gangi í 15 ár. Er leikurinn nógu góður fyrir einstaklinga sem eru að byrja að spila Pokémon í fyrsta sinn og fyrir þá sem hafa spilað frá upphafi? Vissar tegundir leikja geta ekki gert miklar breytingar á þeirri formúlu sem fær leikinn…
Íslenska leikjafyrirtækið Plain Vanilla Games voru að gefa út risavaxinn spurningaleik sem er ókeypis á App Store fyrir iPhone, iPad, og iPod touch. Leikurinn heitir QuizUp og gengur út á að keppa við aðra QuizUp spilara í spurningaleikjum í rauntíma. Fyrirtækið hefur gefið út nokkra QuizUp leiki í gegnum tíðina þar sem hver leikur er með sitt eigið þema – t.d. Twilight QuizUp og Basketball QuizUp. Nýji QuizUp leikurinn er klárlega móðurskip QuizUp leikjanna og er mun umfangsmeiri en fyrri leikir fyrirtækisins. Í nýja QuizUp leiknum er að finna yfir 250 mismunandi spurningaflokka og yfir 150.000 spurningar. Spurningarnar geta verið…
Hrafnsauga, sem er fyrsta bók í bókaflokknum Þriggja heima saga, kom út hjá Vöku-Helgafelli árið 2012 og hlaut sama ár Íslensku barnabókaverðlaunin og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana sem besta íslenska táningabókin. „Nær þúsund ár eru liðin frá því myrkraöldin leið undir lok, þegar vitringarnir sjö komu saman og sigruðu skuggana. Hin myrka tíð hefur að mestu gleymst. En þótt minni manna sé brigðult gleyma hin fornu öfl engu.“ [Forlagið] Hrafnsauga er unglingabók sem fjallar um ævintýri þriggja 15 ára unglinga af þjóðflokki Jana, Janar eru nokkurs konar hirðingjar en þó með fasta búsetu. Þeir búa í fámennum þorpum, lifa af landinu…
Fimmtudagskvöldið 7. nóvember býður CCP spilurum EVE Online og öðrum áhugasömum til spilara-samkomu í höfuðstöðvum sínum við Grandagarð 8. Á samkomunni verður EVE: The Second Decade Collector’s Edition viðhafnarútgáfan af EVE Online, sem gefin er út í tilefni af tíu ára afmæli leiksins, til sýningar og sölu. Væntanleg viðbótarútgáfa við EVE Online, Rubicon, verður kynnt- og rætt um leikinn DUST 514 sem kom út fyrr á árinu fyrir PS3 leikjavélar SONY. CCP mun einnig gefa nokkur eintök af EVE Online viðhafnarútgáfunni – og það er aldrei er að vita nema heimsveldin fjögur sem eigast við í leiknum verði með útsendara…
Svartir sunnudagar sýndu eina vinsælustu hrollvekju allra tíma, The Shining í leikstjórn Stanley Kubricks, síðastliðinn sunnudag í fullum bíósal í Bíó Paradís. 119 mínútna útgáfan var sýnd og var búið að endurbæta hljóð og mynd verulega fyrir háskerpu-kynslóðina. Sýningin heppnaðist ótrúlega vel og var þetta einstakt tækifæri að sjá myndina á hvíta tjaldinu eftir öll þessi ár. En nóg um sýninguna, dembum okkur í sjálfa myndina! The Shining er frá árinu 1980 og byggir á samnefndri bók eftir hrollvekjuhöfundinn Stephen King. Þar er sagt frá þriggja manna fjölskyldu sem flytur í risavaxið hótel yfir vetrartímann. Faðirinn og eiginmaðurinn Jack Torrance…
Drakúla, ein frægasta hrollvekja sem skrifuð hefur verið, birtist nú loks í heild sinni á íslensku. „Greifinn tók greinilega eftir því og hörfaði. Hann glotti fremur grimmilega og sýndi meira af framstæðum tönnunum en hann hafði áður sýnt. Hann settist aftur niður sín megin við eldstæðið. Við þögðum báðir um stund og þegar ég leit í átt að glugganum sá ég fyrstu ljósglætu komandi dags. Yfir öllu var undarleg kyrrð. Þrátt fyrir það varð ég var við marga úlfa spangóla neðar í dalnum. Augu greifans blikuðu og hann sagði: „Hlýðið á börn næturinnar. Hve tónlist þeirra er töfrandi!“ Fyrsta heildarþýðingin…
Gamestöðin í Kringlunni og Smáralind og Elko í Lindum verða með sérstaka kvöldopnun kl. 22 í kvöld, mánudaginn 4. nóvember, í tilefni útgáfu Call of Duty: Ghosts. Leikurinn kemur út á PC, Playstation 3, Wii U og Xbox 360, og síðar í nóvember á PS4 og Xbox One leikjatölvurnar (sem ekki verða fáanlegar á Íslandi fyrr en á næsta ári). Gamestöðin heldur auk þess til lasertag-keppni í Skemmtigarðinum milli þeirra sem hafa forpantað eintak í verslunum sínum. Nánari upplýsingar fást á Facebooksíðu Gamestöðvarinnar. Stikla úr Call of Duty: Ghosts
Myndin er einstakt tækifæri til að kíkja á bakvið tjöldin í umdeildu dómsmáli vegna höfundarréttarbrota gegn stofnendum deilisíðunnar Sjóræningjaflóans. Þegar hakkara-undrabarnið Gottfrid, vef-aktívistinn Peter og tölvunördið Fredrik eru fundnir sekir standa þeir frammi fyrir raunveruleika lífsins án netsambands – fjarri lyklaborðinu. En djúpt niðri í myrkviðum gagnaveranna leynast tölvur sem halda hljóðlega áfram að afrita skrár. (RIFF) TPD AFK fylgir þremur stofnendum hinnar víðfrægu síðu The Pirate Bay eftir dagana kringum fyrirtöku máls sænska ríkissins og bandarískra kvikmynda- og tölvuleikjarisa gegn þeim á tveimur dómsstigum. Þremenningarnir Fredrik Neij, Gottfrid Svartholm og Peter Sunde, ásamt fjórða manni sem var fjárhagslegur stuðningsaðili, voru…
Í tilefni hrekkjavöku ætla Svartir sunnudagar að sýna hrollvekjuna The Shining í leikstjórn Stanley Kubricks sunnudaginn 3. nóvember. Jack Nicholson, Shelley Duvall og Danny Lloyd fara með aðalhlutverk myndarinnar sem er frá árinu 1980 og byggir á samnefndri bók eftir Stephen King. The Shining hefur notið mikilla vinsælda í gegnum árin og er meðal annars í 49. sæti á topplista IMDb. Skoða viðburðinn á Facebook. Stikla úr The Shining