Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Íslenskt»Geisladiskabúð Valda á tímamótum
    Íslenskt

    Geisladiskabúð Valda á tímamótum

    Höf. Sveinn A. Gunnarsson17. janúar 2026Uppfært:18. janúar 2026Engar athugasemdir6 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Þorvaldur Gunnarsson, best þekktur sem Valdi, hefur rekið Geisladiskabúð Valda síðan árið 1998. Lengst af var búðin á Vitastígnum í Reykjavík, en fyrir nokkrum vikum flutti hún á nýjan og betri stað að Háteigsvegi 2. Í tilefni þess datt okkur hér hjá Nördinum í hug að kíkja á Valda og spjalla aðeins við hann um bransann og hann sjálfan.

    Margir kannast við það að þræða þröngu gangana í búðinni á Vitastígnum og finna einhvern gullmola af notuðum vínyl, geisladiskum, teiknimyndablöðum, manga-bókum eða ótal tölvuleiki á hinar ýmsu leikjavélar, allt frá upprunalegu Nintendo yfir í PlayStation 5 eða Xbox Series.

    Það er skemmtileg tilfinning að finna notað eintak af hlut og gefa því framhaldslíf í safninu hjá sér. Fyrir marga er þetta góð leið til að tengjast aftur einhverju sem það hafði gaman af í æsku en fyrir aðra er þetta að uppgötva eitthvað í fyrsta sinn. Valdi sjálfur er hafsjór af upplýsingum um tónlist, tölvuleiki, fótbolta og margt annað sem fólk gæti haft áhuga á. Mínar heimsóknir eru minnsta kosti mjög sjaldan stuttar. Það er ávallt gaman að spjalla við Valda og hina ótal fjölbreyttu viðskiptarvini hans.

    1. Hvað kveikti áhugann á að opna verslun einungis með notuð eintök?

    Þegar ég opnaði var ég ekki endilega að hugsa um að hafa notuð eintök. En ég hef alltaf haft áhuga á svona „old school gaming“, líka tónlist og DVD. Það var kannski þess vegna sem varð svo mikið af notuðum eintökum í byrjun og núna. Það hefur svo þróast þannig að ég er með miklu meira af nýju efni en í byrjun.

    1. Hvernig velur þú hvaða titla eða tegundir þú tekur inn — er eitthvað sem selst alltaf vel?

    Ég er oftast að velja dálítið með hjartanu til dæmis tölvuleiki í PlayStation 4 og 5. Sameiginlegur vinur okkar minntist á að ég ætti að vera duglegri að versla meira inn eftir því sem selst vel. Ég er að reyna að bæta mig þar og versla inn vinsælla efni en oft áður. En ég hef alltaf verið hrifinn af því að vera með mikið úrval af góðum titlum og er frekar að vona að efnið seljist því að mínu mati er ég að velja fína titla.

    1. Hefur eftirspurn eftir áþreifanlegu efni (DVD, Blu-ray, plötum, spilum) breyst á síðustu árum?

    Jú eftirspurn af áþreifanlegu efni hefur aukist, ég tók sérstaklega að eftir COVID finnst mér að það seljist meira af svoleiðis. En salan á PlayStation 4 og 5 efni hefur reyndar minnkað eftir COVID því miður. En DVD, CD og að sjálfsögðu vínyl hefur aukist að mínu mati.

    1. Hvað er skemmtilegast við starf dagsins — og hvað er erfiðast?

    Ég myndi segjast að skemmtilegast séu viðskiptavinirnir, það er svo oft mikið af skemmtilegum viðskiptavinum. En erfiðast við svona starf og leiðinlegast eru hlutir eins og bókhald og ársuppgjör.

    1. Geturðu nefnt óvæntustu eða sjaldgæfustu gripina sem hafa borist í verslunina?

    Sjaldgæfast sem hefur komið í Valdabúð er Björk platan eða Icecross, Svanfríður og þess háttar vínylplötur. Í tölvuleikjum dettur mér ekkert í hug nema kannski gamla Zelda eða Final Fantasy leiki eða eitthvað svoleiðis.

    1. Okkar lesendur hafa mikinn áhuga á tölvuleikjum, hvað geta áhugasamir tölvuleikjaspilarar reiknað með að finna í versluninni þinni?

    Ég er að reyna að hafa eins breitt úrval og ég get í tölvuleikjunum. Þá sem sagt er ég ekki endilega alltaf að leita eftir vinsælustu leikjunum þó að það sé áhugavert. Hugsjónin er pínulítið að vera með breitt úrval af tölvuleikjum í svona „old school“ tölvur.

    1. Hvernig lítur dæmigerður viðskiptavinur út, eða er hópurinn fjölbreyttari en margir halda?

    Dæmigerður tölvuleikjaáhugamaður er kannski á milli tvítugst og fertugt í þessa „old school“ tölvuleikina. Þeir líta margir pínulítið út eins og ég með gleraugu og kannski pínulítið „nördalegir“ í útliti. En það er að sjálfsögðu ekki algilt. Fyrir PlayStation 4 og 5 eða Switch er það að sjálfsögðu frá 10 ára og uppúr.

    1. Hefur streymis- og stafræna umhverfið haft áhrif á reksturinn, og ef svo er hvernig?

    Streymisveitur og PlayStation Store hafa haft gríðarleg áhrif og ég myndi segja að þessi „mainstream“ viðskiptavinur sést ekki eins mikið. Það eru svona aðallega menn og konur sem hafa mjög mikinn áhuga á tölvuleikjum sem eru að mæta. En svona almennt í tónlist þá er aukning í að yngri viðskiptavinir séu byrjaðir að versla CD, vínyl og DVD. Það er mjög gott. En í tölvuleikjunum eru það miklir áhugamenn sem eru að versla.

    1. Hvað finnst þér skipta mestu máli til að varðveita áhugann á gömlum miðlum og safnamenningu?

    Lykillinn í að varðveita áhugann á gömlum miðlum er í rauninni í okkur sjálfum. Það er nostalgían. Ég hef tekið eftir því að fólk er í auknu mæli byrjað að hafa áhuga á eldri miðlum svo sem vínyl, geisladiskum og tölvuleikjum líka. Eitt sem er mjög stórt í að viðhalda áhuganum er að sjálfsögðu internetið, heimasíður og YouTube. Síðan fólk sem er að spjalla saman, það er eiginlega  lykill að þessu öllu.

    1. Hvaða ráð myndir þú gefa fólki sem vill byrja að safna kvikmyndum, leikjum eða tónlist?

    Ágætis ráð þegar maður er að byrja að safna tónlist, kvikmyndum eða tölvuleikjum, er gott að byrja á því að safna því sem maður horfði á, spilaði eða hlustaði á þegar maður var barn eða unglingur. Það er það sem flestir gera og er ágætis upphafsstaður. Síðan getur maður alltaf bætt við sig og finnur það svo á sér hvernig er best að gera þetta.

    1. Hvert sérðu verslunina þróast á næstu árum — eru einhver ný plön eða hugmyndir fram undan?

    Ég er fluttur í stærra húsnæði á Háteigsvegi 2, kominn í 114 fermetra úr 50 fermetrum. Svo að það er miklu meira pláss á nýja staðnum og miklu betra aðgengi en að gamla staðnum, betri bílastæði. Síðan er framundan að ég er að byrja með „Reykjavík Retro Games“ sem tölvuhlutinn mun heita í framtíðinni.

    Stefnan er eins og ég er nú þegar byrjaður á að auka úrval leikja. Mun reyna að auglýsa jafnvel betur. Síðan verður að sjálfsögðu eins með tónlist og bíómyndir, þá verður meira pláss fyrir svoleiðis. Ég er líka byrjaður að bæta inn Funko Pop, aðeins að nörda þetta ennþá meira upp.

    Nýja verslunin á Háteigsvegi 2 er bylting að mínu mati sem gefur versluninni meira pláss til að vaxa og auðvitað auka við úrvalið af vörum sem eru í boði.

    Við þökkum Valda innilega fyrir að svara nokkrum spurningum fyrir okkur hérna á Nörd Norðursins og við hvetjum alla til að kíkja í búðina til hans, skoða hvað er í boði og staldra jafnvel við fyrir spjall ef tækifæri gefst.

    Okkur langaði einnig að benda ykkur á stórgóða heimildarmynd sem Ágúst Stefánsson gerði árið 2017 sem fjallar um Valda og búðina hans.

    Hægt er að skoða Facebook síðu búðarinnar hérna og er Valdi duglegur að setja inn nýtt efni sem dettur inn í búðina.

    Blu-ray CD DVD Geisladiskabúð Valda pc playstation Valdi Vinyl xbox
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaÞegar leikur biður þig um að hætta að reyna
    Næsta færsla Bestu tölvuleikir ársins 2025
    Sveinn A. Gunnarsson

    Svipaðar færslur

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026

    Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War

    2. febrúar 2026

    Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum

    30. janúar 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026

    Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War

    2. febrúar 2026

    Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum

    30. janúar 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni
    • Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik
    • Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War
    • Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum
    • Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.