Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Menning»9 punktar sem gagnast við gerð uppvakningabúnings
    Menning

    9 punktar sem gagnast við gerð uppvakningabúnings

    Höf. Nörd Norðursins31. janúar 2013Uppfært:31. janúar 2013Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Í dag, fimmtudaginn 31. janúar, kl. 17:30 munum við standa fyrir uppvakningagöngu (zombie walk) í miðbæ Reykjavíkur. Ekki hafa allir breytt sér í uppvakning áður og höfum við því skellt saman níu hugmyndum sem geta gagnast við gerð á uppvakningabúningi. Við hvetjum lesendur sem lauma á fleiri góðum ráðum til að deila því með okkur hinum og kommenta í kommentakerfið hér fyrir neðan.

     

    1. Andlitsmálning

    Andlitsmálning fæst til dæmis í Partýbúðinni og Hókus Pókus fyrir lítinn pening. Gott er að þekja andlitið með hvítri málningu og nota svartan lit til að skyggja. Svo er hægt að bæta við bláum eða grænum lit til að gera æðar eða dekkja ákveðin svæði og nota rauðan fyrir blóð. Það tekur smá æfingu að ná þessu vel, en þessi gaur á YouTube er með nokkuð góðar leiðbeiningar.
    Einnig er hægt að nota farða sem virkar svipað og andlitsmálning.

     

    2. Gerviblóð

    Gerviblóð kemur vel að notum. Eins og við vitum éta uppvakningar þá sem eru lifandi og er því algengt að þeir séu blóðugir í kringum munninn og oft með opin sár í andlitinu. Samblanda af rauðri andlitsmálningu og gerviblóði getur gert góða hluti, en það ber að vara sig á því að blóðið sé ætt ef það á að setja það í og við munninn. Gerviblóð er meðal annars hægt að kaupa í Hagkaup, Partýbúðinni, auk þess er hægt að nota rauða sultu (ekki verra ef hún er með bitum!) eða blanda saman sýrópi og rauðum matarlit.

     

    3. Gervihúð og sár

    Hægt er að nota eiturlaust lím, lím til að festa gerviaugnhár eða fljótandi latex til að búa til rifna húð, húðflipa og sár. Þetta YouTube kennslumyndband sýnir allt sem sýna þarf.

     

    4. Föt

    Fatnaður getur skipt miklu máli, en uppvakningar geta komið hvaðan sem er; þeir geta verið kaupsýslumenn klæddir jakkafötum, þeir geta verið læknar eða hjúkrunarfræðingar, fótboltamenn eða þessi týpíski Jón Jónsson. Fatnaðurinn getur kryddað upp á búninginn og er hægt að breyta gömlum fötum og sulla smá gerviblóði á flíkurnar til að gera þær raunverulegri.

     

    5. Óhreinlæti

    Óhreinlæti er eitt af mörgum einkennum uppvakninga. Þú getur nuddað hárvaxi eða hárnæringu beint í hárið svo það líti út fyrir að vera skítugt og í rugli – já eða bara sleppa því að fara í sturtu í nokkra daga! Einnig er hægt að gera sig óhreinni með því að maka svartri andlitsmálningu á valda staði eða sletta allskonar rugli í fötin sem maður ætlar að klæðast.

     

    6. Göngulag

    Hegðun uppvakninga er misjöfn en skiptir miklu máli. Sumir uppvakningar ráfa um líkt og heilalausar skepnur (svona) á meðan nýrri uppvakningar hlaupa um og öskra (svona). Ákveddu hvernig uppvakningur þú vilt vera og æfðu hreyfingarnar og hljóðin heima hjá þér. Æfingin skapar meistarann!

     

    7. Leitarvélar

    Farðu á leitarvélar, eins og t.d. Google (Images) eða YouTube, og leitaðu að t.d.  „zombie makeup“ eða „zombie tutorial“. Þar er að finna heilan haug af hugmyndum og kennslumyndböndum!

     

    8. Láttu aðra farða þig

    Nenniru ekki að standa í þessu veseni og vilt fá einhvern til að gera þetta fyrir þig? Þessi hér getur breytt þér í uppvakning gegn gjaldi.

     

    9. Horfðu á uppvakningamyndir

    Horfðu á uppvakningamyndir og skoðaðu uppvakningana. Kannski sérðu einhvern sem veitir þér innblástur.

     

    Forsíðumynd: Wikimedia Commons

     

     

    Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
    ritstjóri Nörd Norðursins.

     

    Bjarki Þór Jónsson búningar cosplay costume uppvakningar zombie zombies
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaCosplay keppni á Japanshátíð HÍ 2. febrúar
    Næsta færsla Uppvakningaganga og The Walking Dead forsýning [MYNDIR]
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Icelandic Game Fest haldið í fyrsta sinn

    14. nóvember 2025

    George R.R. Martin áritar í Nexus 15. nóvember

    12. nóvember 2025

    Reykjavík Game Summit – málþing fyrir fagfólk í leikjabransanum

    4. nóvember 2025

    Prófaðu EVE Vanguard á Arena 18. september

    5. september 2025
    Nýtt á Nörd Norðursins

    VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag

    5. desember 2025

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.