Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Greinar»Bestu tölvuleikir ársins 2025
    Greinar

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    Höf. Nörd Norðursins19. janúar 2026Engar athugasemdir11 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Tölvuleikjasérfræðingar Nörd Norðursins fóru saman yfir tölvuleikjaárið 2025 til að ræða þá leiki sem stóðu upp úr og hvaða leikur verðskuldar titilinn „leikur ársins 2025“ að mati Nörd Norðursins. Titilinn hlýtur sá leikur sem þykir hafa skarað fram úr á árinu sem er nýliðið. Fjöldi vandaðra tölvuleikja kom út en valið á leik ársins að mati Nörd Norðursins var frekar augljóst þegar upp var staðið.

    Clair Obscur: Expedition 33 er
    leikur ársins 2025 að mati Nörd Norðursins

    Leikur ársins 2025 að mati Nörd Norðursins er hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 frá franska leikjafyrirtækinu Sandfall Interactive. Expedition 33 náði að heilla dómnefnd Nörd Norðursins upp úr skónum, líkt og svo marga aðra. Leikurinn nær að blása nýju lífi í „turn-based“ hlutverkaleik þar sem hetjur og óvinir skiptast á að gera í bardögum. Leikurinn er ríkulega innblásinn af japönskum hlutverkaleikjum (JRPG) en kemur jafnframt með ferskan blæ og nýjar og spennandi útfærslur. Leikurinn er ótrúlega fallegur, fullur af ævintýrum og með frábæra flóru af karakterum. Clair Obscur: Expedition 33 býður nýja sem og reynda RPG spilara velkomna til leiks.

    Nörd Norðursins fjallaði um Clair Obscur: Expedition 33 í grein um fyrstu hughrif og í Leikjavarpinu þar sem kafað var dýpra í leikinn.

    Þó Clair Obscur: Expedition 33 hafi átt hug okkar og hjörtu voru fleiri framúrskarandi leikir sem voru gefnir út á árinu og viljum við hjá Nörd Norðursins vekja sérstaka athygli á nokkrum þeirra.


    ⭐ Kingdom Come: Deliverance II ⭐

    Bjarki Þór: Kingdom Come: Deliverance II fangaði hug minn og hjarta á árinu sem var að líða. Sögusvið leiksins er 15. aldar Bóhemía (núverandi Tékklandi) og spilar þú sem Henry, vinur og fylgisveinn lávarðsins af Pirkstein. Henry lendir í fjölbreyttum ævintýrum og þarf að leysa ýmis verkefni – sem tekst misjafnlega vel. Leikurinn fékk næstum fullt hús stiga í leikjarýni minni á vef Nörd Norðursins.

    […] þá var það nákvæmlega þetta sem á endanum heillaði mig svo mikið við leikinn – allt þetta óútreiknanlega, allt það mannlega og hversdagslega.

    Bjarki Þór

    Fáir leikir hafa náð að grípa mig jafn mikið yfir ævina og þessi. Henry er svo einlægur, mannlegur og já, stundum bara eitthvað svo asnalega misheppnaður. Þarna er lítið um glans eða glamúr, heldur tekur blákaldur veruleikinn á móti manni. Ég man enn eftir mínum fyrsta alvöru dauðdaga í leiknum. Ég týndist í skógi og var byrjaður að missa líf sökum hungurs. Í skóginum fann ég kjöt sem ég neyddist til að borða hrátt – það var þá í raun val um að deyja þá úr hungri eða taka sénsinn með þetta hráa kjöt sem ég fann. Loks þegar ég fann leið út úr skóginum var Henry greyið orðinn máttvana af þreytu og þurfti að finna sér hvíldarstað. Þar sem ég átti enga peninga stalst ég til að leggja mig í hlöðu hjá bónda á nágreninnu og vonaðist nú til að enginn tæki eftir mér. Eftir nokkra klukkutíma svefn vakna ég svo óvænt við að húsfrúin á bænum finnur mig í hlöðunni og kallar á verðina þar sem ég borgaði ekki fyrir gistinguna. Verðirnir eltu mig langa leið og ég hleyp og hleyp og hleyp – og verðirnir ætla sér að ná mér. Ég sé þá skilaboð í leiknum um að ég sé kominn með matareitrun, væntanlega eftir að hafa borðað kjötið í skóginum. Eftir að hafa hlaupið dágóðan spöl með verðina á hælum mér kraup ég niður á blautum moldarstíg og dó þar úr matareitrun, í drullunni… Eins niðurdrepandi og þessi upplifun hljómar þá var það nákvæmlega þetta sem á endanum heillaði mig svo mikið við leikinn – allt þetta óútreiknanlega, allt það mannlega og hversdagslega. Húmorinn í leiknum hittir einnig beint í mark að mínu mati.

    Leikurinn inniheldur áhugaverða sögu, fjölbreytt verkefni, góða og á köflum óhefðbundna spilun, og síðast en ekki síst þá er leikjaheimurinn í KCD2 ótrúlega fallegur.


    ⭐ Death Stranding 2: On the Beach ⭐

    Sveinn Aðalsteinn: Þegar ég hugsa um leikina sem ég spilaði á þessu ári þá er það einn sem stendur uppi fyrir mig og það er Death Stranding 2: On the Beach. Eins og góðu framhaldi sæmdi þá byggði nýi leikurinn ofan á þeim heimi sem sá fyrri kynnti okkur fyrir. Sam er á ný dreginn inn í atburði færa hann frá Mexíkó til Ástralíu og á ný er takmarkið að tengja sundraðan heim saman. Þetta verkefni á eftir að reynast mjög persónulegt og erfitt fyrir hann og var það eitthvað sem náði mér frá byrjun.

    […] búið ykkur bara undir skrítið ferðalag sem er ekki alltaf auðvelt að skilja, en ævintýrið er ótrúlegt sjónarspil og skilur margt eftir sig.

    Sveinn Aðalsteinn

    Tónlist leiksins og útlit er til fyrirmyndar og hef ég eytt löngum tíma að hlusta á tónlist leiksins utan við spilun hans. Ég viðurkenni vel að ég hef lengi verið heillaður af skrítnum og oft sýrðum leikjum Hideo Kojima og DS2 er engin undantekning þar á ferð. Ég sökkti vel yfir 110 tímum í leikinn og ég býst alveg við að ég endurtaki leikinn þegar hann kemur út vonandi á PC síðar. Þetta er leikur sem ég hugsa enn til nokkrum mánuðum eftir að ég spilaði hann en það er eitthvað sem er ekki alltaf algengt með alla þá leiki sem ég spila eða fjalla um árlega.

    Þetta er ferðalag sem ég mæli með að kíkja á, búið ykkur bara undir skrítið ferðalag sem er ekki alltaf auðvelt að skilja, en ævintýrið er ótrúlegt sjónarspil og skilur margt eftir sig.


    ⭐ Donkey Kong Bananza ⭐

    Daníel Rósinkrans: Mig minnir að leikja-áramótaheitið mitt fyrir 2025 hafi verið að spila fleiri nýja leiki sem komu út fyrir þetta árið. Eins og oft áður gekk það ekki eftir… Ég hóf spilun á fullt af nýjum leikjum en einhvern veginn missti dampinn og kom mér ekki í að spila þá aftur. Leikir á borð við Expedition 33, Death Stranding 2, Ghost of Yōtei og fleiri sem ég man ekki eftir í augnablikinu. Sennilega allt Switch 2 að kenna (eða þakka). Í stað þess að velja einn „besta leik ársins“ (að mínu mati) ætla ég að velja einn leik á Switch 2 sem mér fannst standa upp úr og tókst jafnframt að klára. Meiri að segja 100%, sannið þið til!

    Leikurinn tekst að breyta hefðbundnum leikreglum hopp- og skoppleikja með því að gera nær allt umhverfið eyðileggingarhæft og skapa þannig nýjar áskoranir fyrir spilarann.

    Daníel Rósinkrans

    Donkey Kong mætti til leiks í nýjum þríviddar hopp- og skoppleik (3D platformer) fyrir Nintendo Switch 2 síðasta sumar. Leikurinn tekst að breyta hefðbundnum leikreglum hopp- og skoppleikja með því að gera nær allt umhverfið eyðileggingarhæft og skapa þannig nýjar áskoranir fyrir spilarann. Það er ótrúlegt að sjá hversu mikið er hægt að eyðileggja án þess að gera út af við spilun leiksins og hreinlega brjóta hann gjörsamlega. Mario teymið hjá Nintendo komu að gerð leiksins og sönnuðu enn eina ferðina að þau tróna enn á toppnum við gerð hopp og skopp leikja. Donkey Kong Bananza er að mínu mati skyldueign fyrir aðdáendur þrívíddar hopp- og skoppleikja.

    Leikurinn er eingöngu fáanlegur fyrir Nintendo Switch 2 leikjatölvuna.


    ⭐ Dispatch ⭐

    Unnur Sól: Dispatch er óhefðbundinn stjórnunar- og sögudrifinn leikur þar sem spilarar fara með hlutverk neyðarboðstjóra fyrir hóp ofurhetja. Í stað hefðbundinnar hasarupplifunar snýst leikurinn um að taka erfiðar ákvarðanir undir miklu álagi, meta takmarkaðar upplýsingar og forgangsraða úrræðum þegar ekki er hægt að bregðast við öllum útköllum.

    Í stað hefðbundinnar hasarupplifunar snýst leikurinn um að taka erfiðar ákvarðanir undir miklu álagi, meta takmarkaðar upplýsingar og forgangsraða úrræðum þegar ekki er hægt að bregðast við öllum útköllum.

    Unnur Sól

    Leikurinn sameinar persónudrifna frásögn og vinnustaðstemningu með léttum húmor og alvarlegum undirtónum. Hann skarar fram úr með einfaldri en áhrifaríkri framsetningu, vel hönnuðu notendaviðmóti og sterku frásagnarformi sem setur siðferðilegar afleiðingar í forgrunn. Dispatch tekst að skapa spennu án þess að reiða sig á sjónrænar brellur eða yfirhlaðna framsetningu og skilur eftir sig sterka tilfinningu fyrir ábyrgð og mikilvægi ákvarðana sem gerir hann að einum áhugaverðasta leik ársins.


    ⭐ Arc Raiders ⭐

    Daníel Páll: Þetta ár er búið að vera ekkert eðlilega gott tölvuleikja ár og því mjög erfitt að velja hvað hefur staðið upp úr. Mest spilað á árinu hjá mér af nýlegum leikjum eru Clair Obscur, Arc Raiders og Battlefield 6. Af þessum eru þeir sem standa mest upp úr Clair Obscur og Arc Raiders, en fyrir alveg mismunandi hluti. Clair Obscur hefur örugglega ekki farið fram hjá neinum og er með betri sögum í leikjum sem ég hef spilað. Framandi og nýstárlegt umhverfi með nóg af bardögum. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki venjulega hrifinn af svokölluðu „turn-based“ bardagakerfi, en útfærslan sem er notuð í Clair Obscur slær í mark og heldur manni við efnið. Leikurinn er einspilunarleikur og því er hægt að fara í gegnum leikinn á sínum hraða.

    Arc Raiders er síðan hinum megin á teningnum, en hann er fjölspilunarleikur og byggir á mannlegum samskiptum ef það er rekist á aðra spilara í rústum fyrrum siðmenningar.

    Daníel Páll

    Arc Raiders er síðan hinum megin á teningnum, en hann er fjölspilunarleikur og byggir á mannlegum samskiptum ef það er rekist á aðra spilara í rústum fyrrum siðmenningar. Leikurinn gerist á tímum þar sem vélmenni ráða yfir yfirborði Jarðar og mannfólk hefur neyðst til að flýja neðanjarðar. En oft vantar vistir, tæki og búnað, og því eru svo kallaðir Raiders sendir upp á yfirborðið. Hægt er að spila einn til þrír saman, en aðrir spilarar eru á yfirborðinu á sama tíma og spurningin er, eru þeir vinalegir, eða skjóta þeir ykkur í bakið um leið og þið snúið ykkur við? Eða ert þú sá sem skýtur fyrsta skotinu? Því eina góssið sem þú færð að eiga er það sem þér tekst að komast með tilbaka, því ef þú fellur þá geta aðrið tekið þína hluti. Því er gott að hafa varann á.


    ⭐ Death Stranding 2 ⭐

    Steinar Logi: Á þessum tímapunkti hefur Expedition 33 fengið öll leikjaverðlaun undir sólinni svo að ég var mikið að spá í hvort ég ætti ekki að finna einhvern annan sem ég spilaði sem væri í sama klassa og velja hann. En það kom ekki annar til greina því að Clair Obscur tikkar í nær öll boxin fyrir mig. Hann er „turn-based“ RPG sem ég hef gaman af, sagan er í stíl JRPG leikja en samt betri en ég hef séð í þeim og minna aukadót. Ég kann vel að meta að hann er styttri en margir álíka en nær samt þessum epíska fíling. Bardagakerfið var frumlegt og skemmtilegt en samt ekki fullkomið. Tónlistin er svakalega góð og grípur strax athygli manns. Einnig fær hann plús fyrir að vera nýtt IP með frumlegar hugmyndir. Ekki fullkominn leikur en leikur ársins að mínu mati þetta ár.

    Hann heldur öllu sem gerði fyrsta leikinn góðan og gerir viðmót og spilun þægilegri.

    Steinar Logi

    Death Stranding 2 hefði alveg getað verið í fyrsta sæti fyrir mig hefði hann ekki verið framhaldsleikur og því eitthvað sem maður hefur séð áður en hvílíkur framhaldsleikur. Hann heldur öllu sem gerði fyrsta leikinn góðan og gerir viðmót og spilun þægilegri. Teygir óþægilega mikið lopann fyrir þá sem vilja klára hann 100%


    Ofangreindir leikir þykja einstaklega vel heppnaðir að mati hópsins. Aðrir leikir sem vert er að nefna og komust ofarlega á lista að mati dómnefndar:

    AbsolumFarðu með hlutverk bardagahetjunnar Talamh og endurheimtu töfra úr greipum sólarkonungsins Azra í þessum roguelite-bardagaleik.
    Ball x PitAnnar roguelite‑leikur þar sem þú notar kúlur til að drepa óvinina. Fjöldi karaktera og vopna sem hafa sín einkenni og hægt að blanda þeim saman í áhugaverða kokteila.
    Blue PrinceEnn annar roguelite-leikurinn! Leystu þrautir og púslaðu herbergjum í húsi rétt saman til að komast á leiðarenda. Hljómar kannski óspennandi en útfærslan er hreint út sagt stórkostleg.
    DeltaruneÓhefðbundinn RPG-leikur þar sem leikreglum er snúið á hvolf. Leikurinn er hliðarsaga Undertale sem margir ættu að þekkja og býður Deltarune upp á svipaða upplifun og Undertale.
    Elden Ring: NightreignSjálfstætt ævintýri innan Elden Ring‑heimsins þar sem spilarar vinna saman við að berjast gegn skrímslum og ófreskjum næturinnar.
    Ghost of YoteiGerist 300 árum eftir Ghost of Tsushima þar sem þú ferð með hlutverk samúræja í Japan á 17. öld. Býður upp á svipaða upplifun og Ghost of Tsushima sem var leikur ársins 2020 að okkar mati.
    Hell is UsÞriðju persónu hasar- og ævintýraleikur þar sem bardögum og könnun leikjaheims er tvinnað saman. Rannsakaðu fortíð þína og berstu við dularfullar verur á leið þinni.
    South of MidnightHlaut verðlaun sem hugvekjuleikur ársins á The Game Awards 2025. Nútímaleg þjóðsaga þar sem þú kannar goðsagnir og lærir forna krafta til að yfirstíga hindranir og afhjúpa fortíð fjölskyldu þinnar.
    Absolum Arc Raiders BallxPit Blue Prince Clair Obscur Expedition 33 Death Stranding 2 Deltarune Dispatch Donkey Kong Donkey Kong Banaza Elden Ring Elden Ring Nightreign Ghost of Yotei Hell is Us Kingdom Come Deliverance 2 Leikir ársins Leikir ársins 2025 South of Midnight topplisti
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaGeisladiskabúð Valda á tímamótum
    Næsta færsla Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Leikjalisti dj flugvélar og geimskips

    13. febrúar 2026

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026

    Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War

    2. febrúar 2026

    Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum

    30. janúar 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjalisti dj flugvélar og geimskips

    13. febrúar 2026

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026

    Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War

    2. febrúar 2026

    Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum

    30. janúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjalisti dj flugvélar og geimskips
    • Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni
    • Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik
    • Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War
    • Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.