Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Apex Legends seinkar á Nintendo Switch
    Fréttir

    Apex Legends seinkar á Nintendo Switch

    Höf. Sveinn A. Gunnarsson28. október 2020Uppfært:29. október 2020Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Nintendo eigendur þurfa að bíða aðeins lengur eftir að geta spilað Apex Legends frá Respawn Entertainment sem átti að koma út bráðlega. Honum hefur verið seinkað til næsta árs, en leikurinn kemur þó út á Steam leikjaveitunni þann 4. nóvember eftir að hafa bara verið aðgengilegur á Origin, leikjaveitu EA. Fyrirtækið hefur tilkynnt að allt sem spilarar hafa unnið sér inn á Origin mun færast með þeim yfir á Steam.

    Chad Grenier hjá Respawn sagði að liðið sem er að vinna að Switch-útgáfu leiksins þurfi meiri tíma til að geta leyft leiknum að njóta sín til fullnustu á Switch. Hann staðfesti einnig að Apex Legends á Switch muni styðja cross-platform fjölspilun á milli leikjatölva og PC, auk þess sem leikurinn mun fylgja sömu keppnistímabilum (season) og aðrar útgáfur leiksins auk þess sem innihaldið verður það sama og í öðrum útgáfum.

    Verið er að skoða lausnir er varða virkni árángurskerfi leiksins milli tölva og eru framleiðendurnir að skoða lausnir til að gera þetta sem auðveldast fyrir spilara. Að sögn Grenier þá er erfitt að samræma alla þessa aðganga sem fólk hefur af leikjum frá hinum ýmsum þjónustum.

    Steam-útgáfa Apex Legends kemur út sama dag og sjöunda keppnistímabil leiksins hefst. Steam-notendur munu fá Headcrab glaðning úr Half-Life með leiknum.

    Heimild: Destructoid

    Apex Legends Nintendo Switch Origin pc ps4 steam xbox one
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaUbisoft með PS5 og Xbox Series X/S uppfærslur
    Næsta færsla Destruction AllStars seinkar til 2021 og verður PS+ titill
    Sveinn A. Gunnarsson

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3

    16. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026

    Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik

    14. febrúar 2026

    Leikjalisti dj flugvélar og geimskips

    13. febrúar 2026

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3

    16. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026

    Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik

    14. febrúar 2026

    Leikjalisti dj flugvélar og geimskips

    13. febrúar 2026

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3
    • Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale
    • Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik
    • Leikjalisti dj flugvélar og geimskips
    • Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.