Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Beyond víkkar heima No Man’s Sky
    Fréttir

    Beyond víkkar heima No Man’s Sky

    Höf. Sveinn A. Gunnarsson4. ágúst 2019Uppfært:5. ágúst 2019Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Með útgáfu NEXT uppfærslunnar fyrir leikinn No Man’s Sky í fyrra voru líklega sumir sem bjuggust við meiri áherslu á fjölspilun  eða þeirra fjögurra manna sem var í boði. Fyrir aðra var þetta meira en nóg og gerði för þeirra í gegnum undraheima geimsins skemmtilegri.

    Með Beyond uppfærslunni sem kemur í ágúst þá mun leikurinn stækka til muna og verða betri í fjölspilun og tengingu við aðra leikmenn og vonandi fleiri leikmenn að spila á sama tíma en áður. Á sama tíma kemur sýndarveruleika stuðningur við leikinn á PC og Playstation 4.

    Pakkinn mun innihalda þrennar uppfærslur í einum niðurhalspakka að sögn Hello Games hönnuða leiksins. „Þessar breytingar eru blanda af viðbætum sem okkur er búið að dreyma um í nokkurn tíma og úrbætur vegna viðbragða fólks síðan NEXT kom út“.

    Sýndarveruleiki (VR) er eitthvað sem myndi passa vel við leikinn og gefa honum nýja vídd í spilun og verður forvitnilegt að sjá hvernig það kemur út á helstu VR tækjunum á PC og PS4.

    Það er ótrúlegt að sjá breytinguna á No Man’s Sky síðan að hann kom út í ágúst 2016. Eins og gagnrýnandinn okkar Steinar sagði um leikinn þá var hann „Óslípaður demantur“ og Hello Games hafa eytt ótal tímum í að slípa hann til á síðustu árum í stað þess að leyfa honum að fjara út eins og margir útgefendur hafa gert með leiki sem hafa ekki slegið strax í gegn við útgáfu.

    Við mælum með að skoða gagnrýni hans hérna fyrir leiknum eins og hann var við útgáfu.

    Við ættum að sjá meira af leiknum á næstu vikum og verður þessi uppfærsla frí fyrir alla sem eiga leikinn á PC, PS4 og Xbox One þegar Beyond kemur út  14. ágúst næstkomandi.

    Heimild: Hello Games

    Beyond Hello Games NEXT No Mans Sky Oculus Rift pc ps4 PSVR VR
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaWolfenstein: Youngblood fær útgáfustiklu
    Næsta færsla Youngblood er ófrumlegt hliðarspor en góð skemmtun
    Sveinn A. Gunnarsson

    Svipaðar færslur

    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026

    Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3

    16. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.