Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Spil»Greinar»Hvernig læri ég ný spil? Sex ráð til þess að koma þér af stað
    Greinar

    Hvernig læri ég ný spil? Sex ráð til þess að koma þér af stað

    Höf. Magnús Gunnlaugsson31. janúar 2018Uppfært:1. febrúar 2018Engar athugasemdir6 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Það vefst stundum fyrir manni að læra ný spil. Sérstaklega ef maður er að stíga sín fyrstu skref í borðspilum. Manni langar strax að byrja spila nýja spilið sem maður var að fá í hendurnar en til þess að geta notið þess krefst smá undirbúnings. Mér langar að benda þér á nokkur gagnleg ráð sem ég nýti mér við að læra ný spil.

    Fá einhvern til að kenna sér

    Ef þú ert svo heppin(n) að þekkja einhvern sem þekkir spilið nú þegar þá er um að gera að bjóða þeim í heimsókn og fá hann til að kenna þér spilið. Maður lærir spil að sjálfsögðu best með því að spila þau og ef upp koma einhver vafaatriði er hægt að spyrja viðkomandi spurninga og vonandi hefur hann svörin á reiðum höndum. Fólk er þó misjafnlega fært í því að kenna spil rétt eins og reglubækur geta verið misvel skrifaðar.

    Alla miðvikudaga eru opin spilakvöld í spilasal Nexus sem hefjast oftast í kringum sjöleytið. Hægt er að biðja um að fá lánuð spil úr verslun en langflestir mæta með sín eigin spil. Hér má finna Facebook-hóp tileinkuð þessum kvöldum.

    Svo eru opin spilakvöld hjá Spilavinum annan hvern fimmtudag þar sem fólk getur mætt með sín eigin spil eða sest niður með öðrum og spilað. Þessir tveir vettvangar eru tilvaldir til þess að læra og uppgötva ný spil.

    Horfa á kennslumyndband

    Ég hef alltaf sagt við alla þá sem eru að versla nýtt spil að YouTube sé besti vinur þeirra í leit að regluútskýringum. Mig langar því að benda á nokkrar af mínum uppáhalds YouTube rásum sem einblína sérstaklega á reglu útskýringar.

    • Watch it Played – Þessi rás er að mínu mati sú allra besta. Rodney Smith er með rúmlega 100 myndbönd þar sem hann fer yfir uppsetningu og reglur á fjölda spila.
    • Gaming Rules – Paul Grogan hefur aðstoðað fjöldann allan af útgefendum við skrif á reglubókum svo hann á ekki í neinum vandræðum með að útskýra spil.
    • Rules Girl – Hér á ferðinni ótrúlega stutt en hnitmiðuð myndbönd sem útskýra hin ýmsu spil, það besta er að þau er flest innan við 10mínútur.

    Þetta eru mínar „go-to” rásir sem ég horfi á þegar ég læri ný spil. Ég byrja oftast á því að horfa á þessi myndbönd áður en ég les reglubókina vegna þess að ég á auðveldara með að tengja við hugtökin, táknin og leikmunina eftir að hafa séð þau í mynd.

    Lesa reglubókina og stilla spilinu upp skv. leiðbeiningum

    Að sjálfsögðu er svo nauðsynlegt að lesa reglubókina til að læra spilið almennilega. Ég byrja á því að stilla upp spilinu skv. leiðbeiningum. Tek alla stokka úr plastinu, poppa pappaspjöldin úr mótunum og sortera spilið eftir bestu getu. Svo les ég bara blaðsíðu eftir blaðsíðu, skoða leikmunina og leikborðið jafnóðum til að átta mig á hvar og hvernig hver aðgerð er framkvæmd. 

    Stundum þarf ég að lesa einstaka setningar eða kafla aftur yfir ef mér fannst ég ekki hafa meðtekið það sem ég var að lesa en þá skima ég frekar hratt yfir.

    Spila 1-2 umferðir í tveggja manna leik

    Eftir að ég er búinn að renna einu sinni í gegnum reglurnar þá stilli ég oft upp tveggja manna leik, eða einmennings ef spilið biður uppá slíkt, og spila hreinlega við sjálfan mig eða fæ kærustuna til að spila með mér. Það er oft best að byrja að læra spilið í tveggja manna leik til ná góðum tökum á því áður en þú ferð að kenna fleirum í einu. Ef þú reynir að kenna mörgum í einu án þess að vera með allt þitt á hreinu gætirðu átt von á spurningaflóði sem þú getur ekki svarað með fullri vissu, þarft að athuga í reglubókinni og með því ertu mögulega búinn að tapa athygli meðspilara þinna.

    Leita að FAQ eða reglusamantekt á BGG

    BGG eða Boardgamegeek er uppflettirit borðspilarans, svipað og IMDB fyrir kvikmyndir. Síðan er ekki sú fallegasta í viðmóti en efst er leitarstrengur þar þú getur slegið inn nafnið á spilinu sem þú ert að læra og þú færð lista af niðurstöðum. Smellir á spilið sem þú varst að leita að og þá endarðu á síðu sem inniheldur allar helstu upplýsingar um spilið.

    Hér notast ég aðallega við Files flipann en oftar en ekki er einhver búinn að taka saman reglurnar og koma þeim fyrir á einni til tveimur A4 blaðsíðum. Oft má finna þarna regluleiðréttingar (e. Erratas) eða nánari útskýringar á reglum sem margir hafa spurt um, einnig þekkt sem FAQ.  Til þess að geta náð í skjölin þurfa leikmenn þó að vera meðlimir að síðunni.

    Undir Forums flipanum birtist lítill listi vinstra megin og þar má finna „Rules” eða reglur. Þarna er oft að finna tugi þráða um ýmis konar reglur sem fólki vantar svör við. Ef þú hefur nú þegar ekki fundið svar við einhverri reglu sem þú ert ekki alveg viss með þá er þetta staðurinn til þess að spyrja. Útgefendur og hönnuðir eru oft mjög virkir á þessum þráðum til að aðstoða og útskýra nánar það sem betur mátti fara í reglubókinni.

    Kenna öðrum

    Þegar þú hefur svo náð góðum tökum á spilinu þá er punkturinn yfir i-ið oftar en ekki að geta kennt öðrum spilið. Að geta útskýrt reglurnar á skýran og fljótlegan máta fyrir öðrum gefur þér innsýn hve vel þér hefur tekist upp með að læra spilið. Þeir sem þú kemur til með að kenna munu ábyggilega hafa einhverjar spurningar og þá er gott að hafa svörin á hreinu. Með fleiri spilurum eru meiri líkur á því að upp komi aðstæður þar sem þú ert ekki viss hvernig skal meðhöndla. Engan æsing, það er allt partur af lærdómnum, þú segist hreinlega flettir því upp í reglunum því líkur eru á að þú hafir gleymt einhverri smáreglu og finnir hana fljótlega enda búinn að lesa reglubókina. Nú ef það gengur ekki þá mæli ég með því að þið sem leikmenn gerið það sem ykkur finnst réttast í stöðunni og haldið áfram með spilið. Að spili loknu er hægt að fletta því upp og skoða betur hvernig best hefði verið að leysa úr þeirri reglu sem vafðist fyrir ykkur.

     

    Að lokum vil ég benda á tvo Facebook-hópa; annars vegar Borðspilaspjallið en það er helsti umræðuvettvangur borðspila á Íslandi. Á mánudögum er reglulegur þráður þar sem fólk segir frá því hvað það hefur spilað undanfarna viku, sýnir myndir af spilasafninu sínu, talar um hlaðvörp tengd borðspilum sem það er að hlusta á og hvað svo sem því dettur í hug sem tengist borðspilum.

    Hinn hópurinn er Borðspil Til sölu/skiptis – Hér má finna notuð borðspil sem fólk er að losa sig við. Hér er tilvalið tækifæri til að næla sér í nýtt spil á góðu verði án þess að borga fullt verð fyrir útúr búð.

    Vonandi hafa þessi ráð gagnast þér og þú komir til með að nýta þér þau næst þegar þú færð nýtt spil í hendurnar.

    Hvernig skal læra kennslumyndband Leikreglur Nýtt spil Reglubók
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaLeikjarýni: Shadow of the Colossus – Frábær leikur öðlast nýtt líf
    Næsta færsla PlayStation 4 Pro hækkar í verði á Íslandi
    Magnús Gunnlaugsson
    • Facebook

    Svipaðar færslur

    Skottulæknar í Quacks of Quedlinburg: The Duel

    2. nóvember 2024

    Pest – Spil með sjúklega flott þema

    6. október 2024

    Eldur – Strangheiðarlegt létt samvinnuspil

    23. september 2024

    VAHÚÚ! Lego Super Mario grunnpakkinn prófaður

    30. september 2020

    Spilarýni: Ra – „fljótspilað og skemmtilegt uppboðsspil“

    9. ágúst 2018

    Borðspiladagurinn – Spilað út um allan heim laugardaginn 28.apríl

    25. apríl 2018
    Nýtt á Nörd Norðursins

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    • Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.