Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Spil»Fréttir»Eric M. Lang ráðinn til CMON
    Fréttir

    Eric M. Lang ráðinn til CMON

    Höf. Magnús Gunnlaugsson15. mars 2017Uppfært:15. mars 2017Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Cool Mini or Not (CMON) tilkynntu nýlega að þeir hafa ráðið til sín spilahönnuðinn Eric M. Lang sem leiðtoga/yfirmann spilahönnunar (e. Director of Game Design) CMON. Eric M. Lang er þekktur fyrir epísk spil á borð við Chaos of the old World, Blood Rage, Arcadia Quest, The Others: 7 Deadly Sins og nýjasta verk hans Rising Sun sem er nú í gangi á Kickstarter.

    Eric hefur áður unnið mikið með Fantasy Flight Games (FFG) og þá sérstaklega að LCG kortaspilunum þeirra auk XCOM: The Board Game. Auk þess hefur hann starfað fyrir Wizards of the Coast (WotC) og WizKids. Hann hefur unnið til þónokkurra verðlaun þar á meðal Diana Jones Excellence of Gaming Awards auk The Dice Tower Awards og fimm Origin Awards.

    Sjálfur segir Eric: „CMON er mikill frumkvöðull í gerð borðspila, og þrátt fyrir glæsilegt úrval spila sé margt spennandi í framtíðinni. Það er mikil heiður að hefja störf fyrir Cool Mini or Not og miklir möguleikar í boði.“

    David Preti yfirmaður sköpunardeilda (e.Creative Director) hefur unnið með Eric að nokkrum spilum og hefur þetta um hann að segja: „Að fá Eric til liðs við okkur er stórfenglegt! Hann er góður vinur minn og ég hef unnið með honum að hönnun Blood Rage, Rising Sun og The Others. Ég veit því hvað hann hefur til brunns að bera og þann metnað sem hann tileinkar sér í hönnun spila. Ég er viss um að með Eric sem yfirmann spilahönnunar okkar mun CMON ná enn lengra og auka úrval okkar svo um munar. Ég get ekki beðið eftir því hvað hann mun færa aðdáendum okkar!“

    Eric mun hefja störf formlega þann 1. apríl næstkomandi!

    Mynd: CMON

    CMON Eric M Lang
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaSpilarýni: 7 Wonders
    Næsta færsla CMON tilkynna nýtt tindátaspil byggt á A Song of Ice and Fire
    Magnús Gunnlaugsson
    • Facebook

    Svipaðar færslur

    Skottulæknar í Quacks of Quedlinburg: The Duel

    2. nóvember 2024

    Pest – Spil með sjúklega flott þema

    6. október 2024

    Eldur – Strangheiðarlegt létt samvinnuspil

    23. september 2024

    VAHÚÚ! Lego Super Mario grunnpakkinn prófaður

    30. september 2020

    Spilarýni: Ra – „fljótspilað og skemmtilegt uppboðsspil“

    9. ágúst 2018

    Borðspiladagurinn – Spilað út um allan heim laugardaginn 28.apríl

    25. apríl 2018
    Nýtt á Nörd Norðursins

    VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag

    5. desember 2025

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.