Birt þann 3. febrúar, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins
0UTmessan haldin í Hörpu 7. og 8. febrúar
UTmessan, einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum, verður haldin í fjórða sinn dagana 7. og 8. febrúar í Hörpu. Tilgangur UTmessunnar er ekki síst til að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikill þessi grein er orðin hér á landi en þar mæta mörg helstu og stærstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins, sem og erlendir gestir, og taka þátt með einum eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna sér um hvað tölvuiðnaðurinn snýst.
Hvernig vakta skal heilt þjóðfélag, ábyrgð Íslendinga á netinu, persónuleg notkun samfélagsmiðla eins og Facebook í vinnunni, Bitcoin og þrívíddarprentarar koma við sögu, ásamt fjölda áhugaverðra fyrirlestra, sýninga, keppna, kennslu og afhendingu verðlauna setja auk þess mark sitt á UTmessuna 2014 sem er tvískipt sem fyrr.
Föstudaginn 7. febrúar er ráðstefna sem ætluð er fagfólki en laugardaginn 8. febrúar er Harpa opin almenningi þar sem öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins sýna hvað þau hafa fram að færa. Getraunir, leikir, sýningar, kynningar og uppákomur verða þá í gangi þar sem fjölskyldan getur komið og séð með eigin augum hvað framtíðin ber í skauti sér.
Mikill skortur er á tölvumenntuðu fólki hér á landi sem annars staðar í heiminum og er átak í gangi í fjölmörgum ríkjum Evrópu þar sem fólk er hvatt til að mennta sig í tölvunarfræðum. UTmessan er stærsti liðurinn í því átaki á Íslandi. Enn örlar á þeim misskilningi að þetta sé karlageiri og að góð stærðfræðikunnátta sé nauðsynleg til að fara í tölvunarfræði. Þeim misskilningi þarf að eyða enda er um hálaunastörf að ræða sem fara vel með hefðbundnu fjölskyldulífi.
Gríðarlegur áhugi hefur verið á UTmessunni síðustu ár og er óhætt að segja að dagskráin í ár sé glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Smelltu hér til að skoða heimasíðu UTmessunnar.