Birt þann 9. júní, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Dagskrá E3 leikjasýningarinnar – Fylgstu með í beinni
E3, hin geysivinsæla og risavaxna leikjasýning, hefst í Los Angeles í Bandaríkjunum þriðjudaginn 11. júní næstkomandi og stendur yfir til og með 13. júní. Að venju munu helstu leikjafyrirtæki heims kynna nýja og væntanlega leiki, meðal annars leiki sem verða fáanlegir á PlayStation 4 og Xbox One.
Hægt verður að fylgjast með helstu kynningunum fyrir sýninguna í beinni útsendingu og lítur dagskráin svona út (athugið að tímasetningin er miðuð við íslenskan tíma):
Microsoft – 10. júní kl. 16:30
Bein útsending: GameSpot og Xbox
EA – 10. júní kl 20:00
Bein útsending: EA og GameSpot
Ubisoft – 10. júní kl. 22:00
Bein útsending: GameSpot og YouTube (Ubisoft)
Sony – 11. júní kl. 1:00
Bein útsending: GameSpot, PlayStation og Ustream
Nintendo – 11. júní kl. 14:00
Bein útsending: Nintendo
Nörd Norðursins mun fylgjast með hátíðinni og fjalla um það helsta. Nánari upplýsingar um E3 sýninguna má nálgast hér á heimasíðu E3.
>> E3 2013 - Allt á einum stað <<