Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Bíó og TV»Kvikmyndarýni: The Woman in Black
    Bíó og TV

    Kvikmyndarýni: The Woman in Black

    Höf. Nörd Norðursins26. febrúar 2012Uppfært:26. maí 2013Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Að sjá The Woman in Black í troðfullum bíósal var eins og að upplifa tímaflakk: Margir áhorfendur misstu sig gjörsamlega úr hræðslu yfir klisjum og gotneskum hryllingi af gamla skólanum. Þetta var einfaldlega eins og að vera staddur í bíói á myndinni The House on the Haunted hill árið 1959 eða jafnvel endurupplifa sögu lestur í bernsku yfir Dimma, Dimma Húsinu. Allt sem hefði getað talist drungalegt á tímum kertalýstra húsa var hér til staðar og tókst að hrella fólk álíka mikið og þá.

    Sagan er sáraeinföld og inniheldur mjög lítinn persónuleika utan hryllingsins, en tekst þó að vera mjög fullnægjandi og tókst aðstandendum myndarinnar að mjólka hrollinn upp á hvern einasta dropa. Myndin sker sig ekki frá öðrum hryllingsmyndum af þessu tagi, enda er hún alls ekki að reyna það- það er ekki únsa af ferskri hugmynd hérna og aðstandendur myndarinnar voru greinilega fullmeðvitaðir um það. Myndin er einfaldlega fullviss um takmörk sín og ákveður að gera þessa einföldu draugahúsaráðgátu eins skemmtilega og drungalega og mögulegt er.

    Leikmyndirnar, lýsingin, og leikmunirnir (hugsanlega þeir ógnvænlegustu sem ég hef séð) færa mann beint í drungalega gotneska sögusvið myndarinnar og tæknibrellurnar eru nýttar mjög vel til að skapa mjög óvænt bregðuatriði. Frammistaða Radcliffes er ekki sérlega eftirminnileg en hann stendur fyrir sínu í einföldu aðalhlutverki og hann er nógu sjarmerandi til að virka eins og traust handarband í gegnum sívaxandi drunga myndarinnar.

    Myndin inniheldur slatta af bregðuatriðum sem eru nýtt á hárréttum tímum og virka flest öll. Til að undirstrika þau og byggja upp drungann er mikið af ofur drungalegum senum sem fá hárin til að rísa til himna úr ótta. Eitt sem ég fílaði mikið við myndina er að hraða klippingin gerir mann ansi óstyrkann, hvenær næsta bregðuatriði mun eiga sér stað (þó að flestir sem kunna formúluna út og inn geta að sjálfsögðu giskað nánast alltaf á rétta punktinn) og tókst nokkrum sinnum að gera manni MJÖG bylt við.

    Myndatakan hoppar á milli sjónarhorna þegar eitthvað að handan virðist komast nær aðalpersónunni og eru mörg skotin uppsett þannig að maður hefur ekki hugmynd um hvort eitthvað eigi eftir að stökkva í áttina að persónu Radcliffes þaðan sem maður sá vættina síðast, og bíður maður oft með öndina í hálsinum þó ekkert gerist í kjölfarið.

    hún skilar sér almennilega og er mjög heilsteypt og drungaleg afþreying af gamla skólanum…

    Það er í raun frekar lítið hægt að segja um myndina þar sem hún er mjög stutt og einföld, en eitt er þó víst: hún skilar sér almennilega og er mjög heilsteypt og drungaleg afþreying af gamla skólanum (með stóru G-i) sem á líklega eftir að vera í miklu uppáhaldi hrollvekjuaðdáenda á þessu ári.

    – Axel Birgir Gústavsson

    Axel Birgir Gustavsson hrollvekja kvikmyndarýni The Woman in Black
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaRealm of the Mad God
    Næsta færsla Game of Thrones: MMO
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Secret Level

    10. desember 2024

    RIFF kvikmyndahátíðin 2024

    27. september 2024

    Hvað ef Squid Game leikirnir væru íslenskir?

    13. nóvember 2021

    Austin Powers heimsækir Mass Effect

    19. október 2021

    Íslensk mynd um vináttu í Eve Online hlýtur verðlaun

    14. júní 2019

    Skaparar It’s Always Sunny in Philadelphia búa til þætti um leikjahönnun

    10. júní 2019
    Nýtt á Nörd Norðursins

    VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag

    5. desember 2025

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.