Greinar

Birt þann 29. mars, 2016 | Höfundur: Nörd Norðursins

Hvað mun PlayStation VR kosta á Íslandi?

Bjarki Þór Jónsson skrifar:

Þegar PlayStation 4 og Xbox One leikjatölvurnar voru væntanlegar á markað skoðuðum við hjá Nörd Norðursins verðlag á leikjatölvum og tölvuleikjavörum og reiknuðum þannig út líklegt verð á nýju leikjatölvunum hér á Íslandi árið 2013, áður en tölvurnar fengu staðfestan verðmiða hér á landi. Við vorum nokkuð nálægt raunverulega verðinu, þó PlayStation 4 hafi endað á að vera nokkuð ódýrari en okkar ágiskun, sem er bara gott mál. Nú ætlum við að endurtaka leikinn með PlayStation VR og skella íslenskum gisk-verðmiða á græjuna!

Við munum nota bresku Amazon netverslunina og Elko raftækjabúð á Íslandi til samanburðar þar sem báðar verslanir eru nokkuð vel þekktar fyrir hagstætt vöruverð.

PlayStation VR

Uppgefið verð á PlayStation VR er $399 Bandaríkjadali / €399 Evrur / £349 Bresk pund (fer eftir því í hvaða landi græjan er keypt). Þetta gera í kringum 50 til 60 þúsund íslenskar krónur á núverandi gengi. Undanfarin ár hefur álagning á PlayStation 4 leikjatölvunni verið heldur lítið hér á Íslandi, sérstaklega miðað við margan annan varning. Sem dæmi þá kostar 500 gb. PlayStation 4 af Amazon.co.uk 286 pund í dag (ca. 51.000 kr.) á meðan sama vara kostar 65.000 kr. í Elko – eða u.þ.b. 27% dýrari. Svo það munar sáralitlu þarna á milli ef allur kostnaður (tollur og sendingarkostnaður) er tekinn með í dæmið.

Innihald PlayStation VR pakkans.

Tökum fleiri dæmi. PS4 fjarstýring kostar 45 pund (ca. 8.000 kr.) á Amazon.co.uk og 11.995 kr. í Elko – eða u.þ.b. 50% dýrari. Þráðlaust heyrnatól fyrir PS4. Á Amazon.co.uk kosta heyrnatólin 65 pund (ca. 11.600 kr.) en 19.995 kr í Elko – eða u.þ.b. 72% dýrar. PlayStation Eye fyrir PS4 kostar 39 pund (ca. 7.000 kr.) í sömu Amazon verslun en 10.995 í Elko – eða u.þ.b. 57% meira. Fjórða og seinasta dæmið sem við ætlum að skoða er á nýlegum tölvuleik í PS4. Leikurinn EA SPORTS UFC 2 kostar 40 pund (7.200 kr.) á PS4 hjá Amazon en 12.995 kr. í Elko – eða u.þ.b. 80% meira.

Á þessum dæmum sjáum við að hlutir fyrir PS4 kosta í kringum 50-80% meira hér á landi en í Bretlandi.

Á þessum dæmum sjáum við að hlutir fyrir PS4 kosta í kringum 50-80% meira hér á landi en í Bretlandi. Uppgefið verð í Bretlandi fyrir PlayStation VR er 349 pund, eða í kringum 63.000 kr. Ef við miðum við þessa 60-80% verðaukningu milli landa ætti PlayStation VR að kosta á bilinu 100-113.000 kr. Ég gæti trúað því að Sena, umboðsaðili PlayStation á Íslandi, reyni að halda verðinu á græjunni niðri svo hún seljist betur en þó ekki jafn langt niðri og með leikjatölvuna sjálf (sem verið er að selja með lítilli sem engri álagningu í dag). Ég hef trú á því að PlayStation VR lendi þarna á milli (þ.e.a.s. milli álagningu á leikjatölvunni sjálfri og PS4 aukahlutum) og verði því með u.þ.b. 40-50% verðmismun miðað við breska verðið, eða u.þ.b. 88-95.000 kr.

Við skjótum á: 88.999 kr.

Allur pakkinn dýrari

Nauðsynlegt er að eiga PlayStation 4 myndavélina svo að PlayStation VR virki með PS4 og er myndavélin seld sér (ekki hluti af PlayStation VR pakkanum). Myndavélin kostar í dag 10.995 kr í Elko. Einnig er mælt með því að eiga PlayStation Move þar sem sumir VR-leikir munu styðjast við þann aukahlut. PlayStation Move er ekki fáanlegt í Elko eins og er en á Amazon.co.uk kostar stykkið 30 pund (ca. 5.400 kr.) og kostar trúlega í kringum 8.000 kr. til Íslands og svo bætist við álagning hjá versluninni.

PS Move, PS4, PS myndavélin og PS VR.

Það segir sig sjálft að ef kaupandi PlayStation VR þarf einnig að kaupa myndvélina og Move hækkar verðið á pakkanum töluvert. Ef við höldum okkur við áðurnefnt gisk-verð á PlayStation VR og bætum við myndavélinni og tveimur Move pinnum er verðið komið upp í u.þ.b. 116.000 kr.

Við skjótum á: 115.999 kr.

Möguleg pakkatilboð?

Vonandi nota verslanir þetta tækifæri til að bjóða PlayStation 4 eigendum upp á einhverskonar pakkatilboð

Vonandi nota verslanir þetta tækifæri til að bjóða PlayStation 4 eigendum upp á einhverskonar pakkatilboð, t.d. ; PlayStation VR með myndavélinni og Move stýripinnum. Með góðu verði myndu fleiri mögulega kaupa allan pakkann í sömu verslun, svo þetta er svona win-win dæmi, fyrir verslunina og neytendur. Það væri þó ekki hægt að bjóða upp á mjög sterkan pakkadíl þar sem heldur lítil álagnin væri á PlayStation VR. Segjum því að einn Move pinni fylgi frítt með tilboðspakkanum.

Við skjótum á: 107.999 kr.

Dýrara – en betri trygging

Trúlega verður PlayStation VR a.m.k. 20-30.000 kr. dýrari hér á Islandi en í Bretland – sem getur verið heil eða hálf utanlandsferð. Ef verðið verður mikið hærra hér á landi getur verið að það borgi sig að kaupa vöruna í gegnum vefverslanir á borð við Amazon. Hægt er að forpanta PlayStation VR á bresku Amazon og kostar varan með öllum gjöldun til Íslands í kringum 439 pund, eða 78.700 kr. (með breskri kló).

Það má þó ekki gleyma því að ef tækjabúnaðurinn bilar er maður í aðeins betri málum hér á Íslandi. Við erum með 2 ára ábyrgð á raftækjum í staðin fyrir 1 ár hjá t.d. Amazon UK og ef tækið bilar getum við farið með það sjálf í búðina, í stað þess að þurfa borga háa upphæð í sendingarkostnað.

Allt hefur þetta sína kosti og galla. Nú bíðum við bara spennt að sjá raunverulega verðmiðann þegar PlayStation VR kemur í verslanir í október á þessu ári.

Myndir: PlayStation VR

Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑