Hrollvekjur eru heldur betur sjaldséðar í íslenskri kvikmyndaflóru. Nokkrir ungir kvikmyndagerðarmenn reyna um þessar mundir að fjármagna Ruins, dularfulla íslenska hrollvekju í fullri lengd, í gegnum Indiegogo. Í Ruins er sagt frá bóndanum Friðjóni (Magnús Ólafsson) sem finnur svarta skjalatöku í fjörunni og ákveður að skoða hana betur. Friðjón fer með töskuna heim til sína þar sem hann nær að opna hana og finnur þar hljóðdagbók í eigu fornleifafræðings sem hefur verið að rannsaka hlið til helvítis sem er staðsett á Íslandi. – Það er spurning hvort Hekla komi eitthvað við sögu þar sem menn töldu lengi vel að eldfjallið…
Author: Nörd Norðursins
PlayStation 3 leikurinn The Last of Us hefur heldur betur náð miklum vinsældum frá því að hann kom í verslanir 14. júní síðastliðinn. Leikurinn hefur ekki aðeins hlotið frábæra dóma (við gáfum honum næstum því fullt hús stiga í okkar gagnrýni) heldur hefur hann einnig selst einstaklega vel og hefur nýr leikur ekki selst jafn vel síðan L.A. Noire og Uncharted: Golden Abyss. Einnig er talið að leikurinn hafi skilað inn meiri hagnaði um helgina en nýja Superman stórmyndin, Man of Steel, sem kom í kvikmyndahús sama dag. Það á þó enn eftir að staðfesta þær tölur endanlega. Heimild: Digital…
Í þessu skemmtilega myndbandi fáum við að sjá hvernig nokkrir af tískuhönnuðum fjórða áratugarins sáu tísku framtíðarinnar fyrir sér. Verið velkomin til ársins 2000! -BÞJ
E3 leikjasýningin var haldin í Los Angeles í Bandaríkjunum fyrr í vikunni og hefur Nörd Norðursins verið að fylgjast með því helsta. Nokkur af stærstu leikjafyrirtækjum heims, Microsoft, Sony, Nintendo, EA og Ubisoft, héldu kynningarfundi fyrir hátíðina þar sem væntanlegir leikir og leikjatölvur voru kynntar. Bjarki Þór, ritstjóri Nörd Norðursins, og Helgi Freyr, leikjanörd með meiru, höfðu þetta að segja um kynningarfundina fimm: Bjarki: Það kom mér á óvart hvað Kinect kom lítið við sögu, sérstaklega miðað við að græjan fylgir með hverri seldri Xbox One leikjavél. Verðið kom mér ekki á óvart – 439 pund í Bretlandi og…
The Last of Us er nýjasti leikurinn frá Naughty Dog sem færði okkur Uncharted leikjaseríuna. Leikurinn hefur nú þegar hlotið einróma lof gagnrýnenda og á eflaust eftir að fara á marga topplista í lok ársins. Nörd Norðursins slóst með í förina miklu til þess að svala forvitninni. Leikurinn gerist 20 árum í framtíðinni eftir að útbreidd farsótt hefur tröllriðið heiminum. Fólk lifir í einangruðum herbúðum og verst gegn hinum sýktu. Joel er einn af þeim, hann gerir hvað sem er til þess að lifa af og hikar ekki við að drepa ef einhver ógnar honum. Hann fær það verkefni að…
Gleðilegan föstudag kæru nördar, nær og fjær! Á föstudögum hitum við upp fyrir helgina með því að birta syrpu af nokkrum vel völdum myndböndum. Að þessu sinni ætlum við að renna yfir nokkrar stiklur sem náðu að fanga athygli okkar á E3 leikjasýningunni sem fór fram í Los Angeles fyrr í vikunni. Dead Rising 3 Destiny Metal Gear Solid V Titanfall Tom Clancy’s The Division The Witcher 3: Wild Hunt Kingdom Hearts III Super Mario 3D World >> E3 2013 – Allt á einum stað <<
Mía & Mjálmar er ný íslensk vefmyndasaga með létt-súrrealískum ævintýrablæ eftir Sirrý & Smára, en þau hafa m.a. gefið út íslensku myndasöguna Vampíra sem kom út í fyrra. Í vefmyndasögunni er sagt frá matglaða kettinum Mjálmari og kvenhetjunni Míu sem saman koma illmennum fyrir kattarnef. Á heimasíðu Míu og Mjálmar er vefmyndasögunni lýst svona: Reykjavík — borg óttans, þar sem ógurlegir skúrkar leika lausum hala. Við búum hvorki í öruggum né eðlilegum heimi. Fjendur og furðufuglar ógna öryggi okkar en það er tvíeyki eitt sem aldrei lætur undan. Mía og Mjálmar beita ýmsum brögðum gegn ógnvænlegum ófreskjum og koma klækjóttum…
Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að nýjasta Superman myndin, Man of Steel, verður tekin til sýninga hér á landi þann 21. júní næstkomandi. Sagan um Superman hefur alla tíð hreyft við lesendum og áhorfendum. Enda kannski ekki skrýtið því svona sögur hafa fylgt mannskepnunni frá því að Gilgameskviða var rituð á stein í kringum 1300 – 650 f.Kr. og er ein fyrsta hetjusagan sem fundist hefur, fjallar um hálfguðinn og ofurmennsku hetjuna Gilgames. Hljómar kunnuglega ekki satt. Leikstjóri Man of Steel, Zack Snyder, fer heldur óhefðbundnar leiðir að gerð myndarinnar og kemur í raun á óvart því þessi…
Sýnt var úr eftirfarandi leikjum á kynningu Nintendo fyrir E3 2013. Pokémon X og Y Yoshi’s New Island Mario & Luigi: Dream Team The Legend of Zelda: A Link Between Worlds Shin Megami Tensei IV Fleiri stiklur má finna á YouTube rás Nintendo. -BÞJ >> E3 2013 – Allt á einum stað <<
Sýnt var úr eftirfarandi leikjum á kynningu Nintendo fyrir E3 2013. Super Smash Bros. Bayonetta 2 Mario Kart 8 Monolith Soft Super Mario 3D World The Wonderful 101 Nintendo sýndi úr fleiri klassískum Nintendo leikjaseríum og öðrum leikjum frá samstarfsaðilum. Hægt er að skoða allar stiklurnar á YouTube rás Nintendo. -BÞJ >> E3 2013 – Allt á einum stað <<