Bækur og blöð

Birt þann 17. nóvember, 2020 | Höfundur: Nörd Norðursins

Íslenskir myndasöguhöfundar efna til rafræns útgáfuteytis

Fréttatilkynning frá ÍMS:

Íslenska myndasögusamfélagið (ÍMS) gefur út myndasagnabálk eftir nýjar og spennandi raddir í heimi íslenskra myndasagna.

ÍMS gefur út sína fyrstu bók, myndasagnabálk eftir unga og upprennandi íslenska höfunda. Bókin er titluð ÍMS 2020 Comic Anthology („Myndasagnabálkur ÍMS 2020“). Kjarni bókarinnar er sýningarefni frá tveimur listasýningum, annars vegar finnsk-íslensku Elves at the Airport-sýningunni á Listasafni Reykjavíkur frá nóvember 2019 og hinsvegar Strange Communities-sýningunni á Reykjavik Fringe-listahátíðinni frá júlí 2020. Sögurnar byggja á þjóðsögum og furðusögum sem endurspegla íslenskt nútímalíf og -menningu. Bókin verður 68 bls. á lengd.

ÍMS heldur stafrænt útgáfuhóf gegnum netið með beinu streymi á Facebook-síðu sinni milli 17:00 og 20:00 þann 25. nóvember. Hófið er einnig haldið til að fagna eins-árs afmæli félagsins.

ÍMS heldur stafrænt útgáfuhóf gegnum netið með beinu streymi á Facebook-síðu sinni milli 17:00 og 20:00 þann 25. nóvember. Hófið er einnig haldið til að fagna eins-árs afmæli félagsins. Listafólk sem kom að gerð sagnabálksins kemur í spjall og skiss, H-P Lehkonen stjórnarmeðlimur finnska myndasögusamfélagsins kemur í viðtal og Magnús Björn Ólafsson, handritshöfundur grafísku skáldsögunnar Maram (gefin út af Froski útgáfu) mun kynna bókina sína.

Íslenska myndasögusamfélagið (ÍMS) beitir sér fyrir að halda og kynna menningarlega myndasöguviðburði svo myndasögur geti náð sterkri fótfestu á Íslandi. Meðlimir félagsins eru bæði áhuga- og fagfólk í myndasögugeiranum. Þetta verkefni er liður í því. Félagið var stofnað haustið 2019 af Ötlu Hrafneyju, Védísi Huldudóttur og Einari Vali Mássyni, sem öll vinna sem fagaðilar í myndasögugeiranum.

Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑