Fréttir

Birt þann 10. desember, 2024 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson

0

Aldís Amah Hamilton tilnefnd til BAFTA tölvuleikjaverðlauna

Aldís Amah Hamilton er tilnefnd til verðlauna sem besti aukaleikari fyrir leik sinn í Senua’s Saga: Hellblade II, þar fer Aldís fer með hlutverk Ástríðar

Fyrir stundu var tilkynnt á heimasíðu BAFTA hvaða tölvuleikir eru tilnefndir til BAFTA tölvuleikjaverðlauna 2024. Þá var ljóst að íslenska leikkonan Aldís Amah Hamilton er tilnefnd til verðlauna sem besti aukaleikari fyrir leik sinn í Senua’s Saga: Hellblade II, þar sem Aldís fer með hlutverk Ástríðar. Tölvuleikurinn Hellblade II er tilnefndur til alls tíu BAFTA verðlauna en þess má geta að þá er sögusvið leiksins Ísland á landnámsöld. Hægt er að horfa á upptöku af leiknum í heild sinni með íslenskum texta á YouTube-rás Nörd Norðursins.

Aldís hefur meðal annars leikið í sjónvarpsþáttunum Katla og Svörtu sandar auk þess fer hún með stórt hlutverk í Echoes of the End sem er væntanlegur tölvuleikur frá íslenska leikjafyrirtækinu Myrkur Games.

Eftirfarandi leikarar og leikkonur eru tilnefnd í flokknum besti aukaleikari:

  • Aldís Amah Hamilton sem Ástríðr í Senua’s Saga: Hellblade II
  • John Eric Bentley sem Barret Wallace í FINAL FANTASY VII REBIRTH
  • Jon Blyth sem Big Ron í Thank Goodness You’re Here!
  • Michael Abubakar sem Brodie í Still Wakes the Deep
  • Adam McNamara sem Captain Sevastus Acheran í Warhammer 40,000: Space Marine 2
  • Karen Dunbar sem Finlay í Still Wakes the Deep
  • Troy Baker sem Harvey Dent, Rat King, Two-Face, Joker í Batman: Arkham Shadow
  • Matt Berry sem Herbert the Gardner í Thank Goodness You’re Here!
  • Craig Lee Thomas sem Super Earth Spokesperson í Helldivers 2
  • Abbi Greenland & Helen Goalen sem The Furies í Senua’s Saga: Hellblade II

Mynd: Skjáskot úr Hellblade II

Heimild: BAFTA

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑