Fréttir1

Birt þann 26. september, 2024 | Höfundur: Nörd Norðursins

Dr. Spil og Nörd Norðursins í samstarf

Nörd Norðursins og Dr. Spil eru farin í samstarf í tengslum við umfjöllun á spilum af öllum stærðum og gerðum. Dr. Spil hefur undanfarna mánuði boðið upp á skemmtilegar og hnitmiðaðar umfjallanir á spilum á Instagram-síðu sinni. Þær Auður Magndís og Íris Ellenberger standa á bakvið Dr. Spil þar sem þær deila sínum fyrstu hughrifum á þeim spilum sem þær prófa.

Þar með hefur verið dustað rykið af spilahorni Nörd Norðursins sem hefur legið í dvala í um fjögur til sex ár! Umfjallanir Dr. Spil birtast fyrst á Instagram-síðu Dr. Spil og verða valdar umfjallanir endurbirtar hér á heimasíðu Nörd Norðursins í kjölfarið.

Ef þú hefur brennandi áhuga á spilum er um að gera og fylgja Dr. Spil á Instagram. Sérlega áhugasamir lesendur eru hvattir til að hafa samband við Nörd Norðursins þar sem við leitum eftir fleiri áhugasömum einstaklingum eða hópum til að fjalla um spil, kvikmyndir, tölvuleiki eða annað sem við kemur íslenskum nördakúltúr.

Deila efni


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑