Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Tölvuleikjaveisla á Hinsegin dögum 2022
    Fréttir

    Tölvuleikjaveisla á Hinsegin dögum 2022

    Höf. Bjarki Þór Jónsson2. ágúst 2022Uppfært:2. ágúst 2022Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Created with GIMP
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Hinsegin dagar hófust formlega í dag og standa yfir til og með 7. ágúst. Þrír tölvuleikjatengdir viðburðir verða í boði í dag og á morgun; fyrirlestur um hinsegin í tölvuleikjum og leikjaiðnaðinum, hinsegin gleði í Arena Gaming og GameTíví verður með sérstakt streymi tengt hinsegin dögum.

    ApocalypsticK streymir á GameTíví

    Dragdrottningarnar í Apockalypstick ætla að spila Phasmophobia í beinni á Twitch-rás GameTíví að tilefni Hinsegin daga. Útsending hefst kl. 21 þriðjudaginn 2. ágúst.

    GA(Y)ME OVER: Hinsegin í tölvuleikjum

    Á Regnbogaráðstefna Hinsegin daga verður boðið upp á fyrirlestur um birtingarmynd hinsegin fólks í tölvuleikjum og stöðu þess í leikjaiðnaðinum. Dæmi úr ýmsum tölvuleikjunum verða skoðuð, þar á meðal The Sims, Cyberpunk 2077 og The Last of Us. Fyrirlesturinn fer fram kl. 16:00 miðvikudaginn 3. ágúst á Borgarbókasafninu í Grófinni.
    👉 Skoða viðburð á Facebook

    Hinsegin gleði í Arena Gaming

    Strax að loknum fyrirlestri verður hægt að skella sér á Arena og að hitta aðra hinsegin spilara og mynda tengsl í gegnum gleði og keppni. Keppt verður í nokkrum leikjum og verða þjálfarar á staðnum til aðstoðar. Cosplay-keppni verður á staðnum þar sem flottasti búningurinn fær 100 tíma í Arena í verðlaun. Viðburðurinn hefst klukkan 18 miðvikudaginn 3. ágúst og stendur yfir til miðnættis. Það kostar 2.990 kr. inn og í verðinu er innifalið spilun allt kvöldið og pizzuhlaðborð.
    👉 Skoða viðburð á heimasíðu Hinsegin daga

    Mynd: Samsett af regnabogafánanum, GameTíví auglýsingu og Sims 4 Wedding Stories

    Arena Gaming fyrirlestur GameTíví Hinsegin Hinsegin dagar
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaLeikjavarpið #42 – Elden Ring, Grow og Ísland í tölvuleikjum
    Næsta færsla 10 vel heppnaðir hinsegin tölvuleikir
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026

    StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars

    19. febrúar 2026

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.