Leikjarýni
Birt þann 2. mars, 2021 | Höfundur: Nörd Norðursins
Leikjavarpið #23 – State of Play, Nintendo Direct og PSVR 2
Bjarki lávarður, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Nintendo hélt Nintendo Direct kynningu þann 17. febrúar þar sem fyrirtækið fór yfir það sem framundan er fyrir Nintendo Switch. Sveinn fjallar um nýtt System Shock sýnishorn sem var birt á dögunum. Sony héldu State of Play kynningu þar sem farið var yfir það sem væntanlegt er á PlayStation 4 og 5. Fyrirtækið hefur einnig tilkynnt að önnur útgáfa af PSVR sýndarveruleikagræjum er væntanleg fyrir PS5. Um þetta og margt fleira er fjallað um í 23. þætti Leikjavarpsins!
Efni þáttar:
- Nintendo Direct
- System Shock sýnisorn
- PSVR-2 væntanlegt fyrir PS5
- BlizzcOnline
- EA hætta við Anthem 2.0
- Pokémon Presents
- State of Play