Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Tölvuleikir hækka í verði – líka á Íslandi
    Fréttir

    Tölvuleikir hækka í verði – líka á Íslandi

    Höf. Bjarki Þór Jónsson27. september 2020Uppfært:27. september 2020Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Undanfarna daga hafa myndast heitar umræður á netinu um tölvuleikjaverð á væntanlegum tölvuleikjum fyrir næstu kynslóð leikjatölva. Undanfarin 15 ár hefur tölvuleikjaverðið haldist í kringum 60 dollara í Bandaríkjunum en hækkar upp í 70 dollara með næstu kynslóð leikjatölva (Business Insider). Samkvæmt okkar heimildum má búast við að verð á leikjum hérlendis muni fylgja verðþróun erlendis.

    Á Íslandi erum við háð gengi íslensku krónunnar sem getur sveiflast mikið á milli ára sem þýðir að verðið á tölvuleikjum getur hækkað eða lækkað á milli mánaða. Fyrir um 15 árum var algengt að nýlegir tölvuleikir kostuðu í kringum fjögur til sjö þúsund krónur á Íslandi líkt og fram kemur í þessari verðkönnun sem GameOver.is gerði árið 2007.

    24 stundir (30. nóvember 2007), bls. 56

    Undanfarin ár hefur algengt verð fyrir tölvuleiki verið á bilinu níu til tólf þúsund krónur. Árið 2011 framkvæmdi Nörd Norðursins verðkönnun og var algengt verð þá sjö til tíu þúsund krónur á nýjum leikjatitlum.

    Við fórum á nokkrar íslenskar vefsíður sem bjóða upp á forpöntun á PS5 leikjum og virðist algengt verð vera á bilinu tíu og upp í þrettán, jafnvel fjórtán þúsund krónur, sem gerir í kringum 10% hækkun. Áhugavert er að skoða verðmuninn þar sem Coolshop.is býður upp á besta verðið á PS5 leikjatitlum þar sem hækkunin milli leikjatölvukynslóða er lítil sem engin.

    Elko.is (skjáskot tekið 27. sept. 2020)


    Gamestodin.is (skjáskot tekið 27. sept. 2020)


    Coolshop.is (skjáskot tekið 27. sept. 2020)


    Heimkaup.is (skjáskot tekið 27. sept. 2020)


    Frá árinu 2007 hafa tölvuleikir þar af leiðandi hækkað um 80-150% í verði á íslenskum markaði í íslenskum krónum talið. Samkvæmt Verðlagreiknivél Hagstofu Íslands hefur verðlag hækkað um 82% á sama tímabili.

    Coolshop elko gamestöðin Heimkaup PlayStation 5 PS5 PS5 leikir tölvuleikir tölvuleikjaverð verð verðkönnun
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaPlayStation 5 uppseld á Íslandi – Ekki fleiri eintök væntanleg til landsins á þessu ári
    Næsta færsla Óvíst hvenær Xbox Series S og X koma til landsins
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026

    Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3

    16. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.