Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»NEXT markar nýtt upphaf fyrir No Man’s Sky
    Fréttir

    NEXT markar nýtt upphaf fyrir No Man’s Sky

    Höf. Sveinn A. Gunnarsson19. júlí 2018Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    No Man’s Sky kemur út í næstu viku á Xbox One í fyrsta sinn og í tilefni þess fá allar útgáfu leiksins stóra uppfærslu sem kallast NEXT og bætir alvöru fjölspilun við leikinn.

    Leikurinn kom út fyrir 2 árum fyrir PlayStation 4 og PC og fékk blendna dóma sem mátti að miklu leyti rekja til hvernig leikurinn var kynntur og hlutum lofað, ekki hjálpaði heldur að leikurinn var seldur á dýrari verði enn hann líklega hefði átt að vera á og Sony kynnti hann stíft sem næsta stóra hlutinn.

    Hello Games, framleiðendur leiksins hafa síðan þá unnið hörðum höndum að leiknum og gefið út stórar uppfærslur; Atlas Rises sem innihélt endurbætta sögu, Pathfinder sem var með farartæki og permadeath (varanlegan dauða) og Foundation sem kom með byggingar þar sem leikmenn gátu skapað sínar eigin höfuðstöðvar og stækkað þær.

    NEXT uppfærslan er að sögn Hello Games sú stærsta hingað til, fjölspilun þar sem þú sérð fólkið sem þú ert að spila með (ólíkt í Atlas Rises), og getur farið um á plánetum með þeim, byggt hús og flogið um og út í geim með þeim til að kanna eða berjast. Útlit leiksins hefur fengið uppfærslu ásamt því að nú er hægt að spila leikinn í fyrstu eða þriðju persónu bæði fótgangandi og í geimskipinu þínu.

    „Hægt er að kanna vetrarbrautina með vinum eða með einhverjum sem þú hefur aldrei hitt áður,“ stendur á heimasíðu Hello Games. „Þú getur hjálpað vinum að lifa að, eða herjað á aðra leikmenn til að lifa sjálfur af. Þú getur búið til lítið skýli eða flóknar nýlendur sem aðrir leikmenn hafa aðgang að.“

    „Vertu sjóræningi eða vængmaður í stórum geimbardögum með vinum og óvinum. Keyrið um og keppið á geimskipum á skrítnum plánetum, búið til brautir og leiðir til að deila með öðrum. Hægt er að sérsníða útlit persónu sinnar.“

    Á brú freigátu þinnar er nú hægt að safna saman og uppfæra flota. Það er hægt að senda þau út í geim eða nota til að kanna viss sólkerfi. Það er hægt að bjóða vinum til að spila verkefni saman.

    NEXT uppfærslan er hluti af vinnu Hello Games að bæta leikinn og hefur hann tekið gríðarlegt stökk frá að hann kom fyrst út. Fyrirtækið hefur sagt að þetta sé hluti af stærra verkefni þeirra til að styðja við leikinn.

    NEXT er frí fyrir alla þá sem eiga leikinn og er einnig hluti af Xbox One útgáfu leiksins sem kemur út á sama tíma í næstu viku þann 24. júlí.

    Heimild: No Man’s Sky

    Hello Games No Mans Sky
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaLeikjarýni: The Crew 2 – „verk í mótun“
    Næsta færsla Middle-Earth: Shadow of War losar sig við umdeilda loot boxes
    Sveinn A. Gunnarsson

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025

    Leikjafyrirtækin á Íslandi aldrei fleiri en nú

    19. nóvember 2025

    Leikjavarpið #62 – Steam Machine og GTA VI seinkað

    17. nóvember 2025

    Minnist vinar síns í nýjum tölvuleik – „André dreymdi um að læra íslensku“

    14. nóvember 2025
    Nýtt á Nörd Norðursins

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    • Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.