Birt þann 4. maí, 2016 | Höfundur: Kristinn Ólafur Smárason
Warhammer 40.000: Dawn of War 3 kemur út 2017
Sega og Relic Entertainment kynnti í gær leik sem margir hafa verið að bíða eftir. Warhammer 40.000: Dawn of War 3 mun koma út á næsta ári. Enn sem komið er hafa engin skjáskot verið sýnd úr leiknum sjálfum, en með tilkynningunni fylgdi 4 mínútna löng stikla sem ætti að gera hvern aðdáenda Warhammer 40.000 heimsins dolfallin. Í stiklunni sjáum við þrjá af vinsælustu herjum Warhammer 40.000 heimsins bregða fyrir í stórbrotinni orrustu en þeir eru; hinir nautsterku og brynvörðu Space Marines, hinir stríðselskandi og kröftugu Orkz og að sjálfsögðu hinir dularfullu og háþróuðu Eldar. Þessir þrír herir verða því að öllum líkindum í leiknum, en þó er ekki útilokað að fleiri herir verði með lokaútgáfunni.