Fréttir
Birt þann 4. mars, 2015 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Íslandsmeistaramót í Pac-Man á Fredda 7. mars
Þriðja Íslandsmeistaramótið í tölvuleik sem var gefinn út fyrir árið 1990 verður haldið á Fredda, laugardaginn 7. mars Fyrr á árinu hélt Freddi Íslandsmeistaramót í Donkey Kong, í síðasta mánuði var Íslandsmeistaramót í Tetris á Lebowski og nú er röðin komin að tölvuleiknum Pac-Man! Waka waka waka!
Mótið hefst kl. 16:00 laugardaginn 7. mars á Fredda, Ingólfsstræti 2a. Skráning fer fram á Fredda og á Facebook-síðu Fredda og er þáttökugjaldið 500 krónur.
Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
ritstjóri