Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Freddi snýr aftur – Nýr leiktækjasalur opnar í miðbænum!
    Fréttir

    Freddi snýr aftur – Nýr leiktækjasalur opnar í miðbænum!

    Höf. Nörd Norðursins15. október 2014Uppfært:16. október 2014Engar athugasemdir1 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Eflaust muna margir lesendur Nörd Norðursins eftir leiktækjasalnum Fredda bar sem naut mikilla vinsælda rétt fyrir aldamót. En þær gleðifréttir voru að berast að Freddi mun snúa aftur og opnar næstkomandi föstudag! Mikill skortur hefur verið á góðum spilakassasal á Íslandi og þess vegna eru þetta frábærar fréttir fyrir okkur leikjanördana.

    Fredda bar var með flott úrval af spilakössum á sínum tíma en samkvæmt frétt DV mun nýji staðurinn bjóða uppá fjölbreytt efni, gamalt og nýtt. Þar ber að nefna klassíska spilakassa á borð við Mortal Kombat, NBA, Donkey Kong og Pac-Man, sjö kúluspil, auk þess sem gestir geta leigt sérstök herbergi til að spila tölvuleiki á borð við FIFA 15 og Mario Bros. Einnig verða seld He-Man, ET, Star Wars og fleiri gömul leikföng sem eiga eflaust eftir að fylla mörg nördahjörtu af nostalgíu.

    Opnunartími hefur ekki enn verið auglýstur en nýi staðurinn verður opnaður í Ingólfsstræti 2.

    Uppfært 16. október 2014 kl. 13:56:
    Samkvæmt nýjustu upplýsingum standa enn yfir framkvæmdir á staðnum og því mögulegt að opnunin seinki. Við hjá Nörd Norðursins munum fylgjast með gangi mála og láta vita þegar nýjar fréttir berast.

    Mynd: Mortal Kombat

      

     

    Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
    leikjanörd og ritstjóri Nörd Norðursins.

     

    Freddabar
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaHearthstone-mót Ground Zero 18. október
    Næsta færsla Leikjarýni: Middle-earth: Shadow of Mordor
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026

    StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars

    19. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.