Birt þann 10. september, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Leikjarýni: Halo: Combat Evolved Anniversary
Halo er og mun ávallt vera eitt stærsta flaggskipið hjá Xbox vélinni, því var mikið fagnað þegar fyrsti leikurinn var endurgerður og gefinn út í sérstakri afmælisútgáfu. En tímarnir eru aðrir og kröfurnar um góða leiki er kannski aðeins meiri en þegar leikurinn kom fyrst út. Stenst leikurinn væntingarnar eða er þetta bara léleg endurgerð á klassískum leik?
Sem betur fer þá er ekki á ferðinni léleg HD útgáfa af leiknum og því fær Halo: CE að njóta sín vel í þessari afmælisútgáfu. Auk þess þá styður leikurinn Kinect , samspili (co-op) var bætt við leikinn sem lítið er hægt að kvarta yfir. Uppbygging leiksins er ósnert, þar sem söguþráður leiksins er sá sami. Gervigreind óvina óbreytt og spilun leiksins alveg eins og í upprunalegu útgáfunni. Það sést alveg að mikið var lagt í að halda leiknum óbreyttum, aðeins gefa honum flottara útlit. Einnig er hægt að skipta yfir í upprunalega útlit leiksins, sem er virkilega skemmtilegur valmöguleiki.
Því miður þá virkar leikurinn ekki eins vel í dag og þegar hann kom fyrst út. Í raun þá er spilari alltaf að hlaupa um á sama borðinu og það er pínu pirrandi til lengdar. Einnig er óþolandi að þurfa keyra Warthog í leiknum, stýringarnar eru hreint út sagt skelfilegar.
Í Halo 2 komu Skulls fyrst fram og í Halo 3 voru Terminals kynnt til sögunnar. Halo: CE fær þessar viðbætur í endurgerðinni, sem er skemmtileg viðbót við leikinni. Einnig er Firefight með í leiknum sem er ekkert nema snilld. Hægt er að spila leikinn á Xbox Live, með því að tengja tvær vélar saman við sama skjáinn (split screen) sem eykur endurspilun á leiknum.
Þessi leikur skildueign fyrir alla þá sem hafa haft gaman af Halo leikjunum. Virkilega gaman að spila í gegnum þennan leik, þrátt fyrir að stundum komi fyrir að of mikil notkun á borðum fari stundum í taugarnar á spilara. Gaman verður að sjá hvort Halo 2 verði endurgerður í HD.
Halo: Combat Evolved er alls ekki gallalaus en hann stendur svo sannarlega fyrir sínu. Góður söguþráður, þétt spilun og flott endurgerð. Klárlega miklu betri leikur en Halo 4!
„A hero need not speak. When he is gone, the world will speak for him“
– Master Chief John-117
Höfundur er Helgi Freyr Hafþórsson,
fastur penni á Nörd Norðursins og nemi í fjölmiðlafræði.