Tækni
Birt þann 12. ágúst, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Fyrirlestur um Marsjeppann Curiosity 13. ágúst
Þriðjudaginn 13. ágúst mun Dr. Jim Garvin flytja erindi um jeppann Curiosity sem lenti fyrir u.þ.b. ári síðan á yfirborði Mars. Dr. Jim Garvin er yfirmaður vísindarannsókna hjá NASA Goddard Space Flight Center og meðlimur í vísindahópi Curiosity jeppans. Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00 í stofu 132 í Öskju (Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands) og er aðgangur ókeypis.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stjarnvísindafélags Íslands, Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og Stjörnufræðivefsins.