Birt þann 14. mars, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Tropes vs Women in Video Games – Ný vefsería um tölvuleiki og feminisma
Fyrsti þátturinn í nýrri vefseríu, Tropes vs Women in Video Games, var settur á netið í síðustu viku. Þættirnir voru fjármagnaðir fyrir níu mánuðum á Kickstarter og fékk verkefnið gríðarlega athygli – jákvæða og neikvæða. Margir fjárfestu í þessu rannsóknarverkefni á meðan aðrir litu á hana sem ógn við nútíma tölvuleiki (nánar um haturinn hér: TEDxWomen).
Tropes vs Women in Video Games er í umsjón fjölmiðlagagnrýnandans og femínistans Anitu Sarkeesian sem heldur uppi síðunni Feminist Frequency. Þættirnir fjalla um birtingarmynd kvenna í tölvuleikjum og öðrum vinsælum miðlum og eru margir þekktir tölvuleikir og tölvuleikjapersónur gagnrýndar. Í þessum fyrsta þætti fjallar Anita um hvernig konur eru hlutgerðar og gjarnan sýndar sem hjálparvana og ósjálfstæðar kynverur sem eru algjörlega háðar söghetjunni, sem er nánast alltaf karlkyns. Dæmi eru tekin úr Super Mario Bros. og The Legend of Zelda.
Sama hvaða skoðun fólk hefur á feminískri nálgun tölvuleikjaþá kemur Anita með nokkra góða og gilda punka sem eiga eftir að skapa áhugaverðar umræður í leikjasamfélaginu.
Tropes vs Women in Video Games (1. hluti): Damsel in Distress
Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
ritstjóri Nörd Norðursins.