Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir – FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum! Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026,…
Author: Nörd Norðursins
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvaða leikir stóðu uppúr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!
Tölvuleikjasérfræðingar Nörd Norðursins fóru saman yfir tölvuleikjaárið 2025 til að ræða þá leiki sem stóðu upp úr og hvaða leikur verðskuldar titilinn „leikur ársins 2025“ að mati Nörd Norðursins. Titilinn hlýtur sá leikur sem þykir hafa skarað fram úr á árinu sem er nýliðið. Fjöldi vandaðra tölvuleikja kom út en valið á leik ársins að mati Nörd Norðursins var frekar augljóst þegar upp var staðið. Clair Obscur: Expedition 33 er leikur ársins 2025 að mati Nörd Norðursins Leikur ársins 2025 að mati Nörd Norðursins er hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 frá franska leikjafyrirtækinu Sandfall Interactive. Expedition 33 náði að heilla…
Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims – The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanlegur leikur frá Larian Studios, leikjafyrirtækinu sem gerði Baldur’s Gate 3. Þetta og margt fleira. Mynd: The Game Awards
Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Golden Joystick Awards og margt fleira. Mynd: The Game Awards & íslenski fáninn (tjákn)
Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan og aðeins of langan sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins. Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu – Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við þekkjum hann? Hvaða áhrif mun nýja tölvan hafa á til dæmis Xbox leikjatölvuna frá Microsoft? Fleira efna er tekið fyrir í þættinum og má þar helst nefna seinkunina á Grand Theft Auto VI, Icelandic Game Fest sem er íslensk tölvuleikjaveisla sem…
Vefur Nörd Norðursins hefur fengið andlitslyftingu og er orðinn hraðvirkari og skilvirkari en áður. Enn er verið að ganga frá lausum endum og við biðjumst velvirðingar á villum sem kunna að koma upp á meðan vinna stendur yfir. Samhliða nýju útlitið hefur verið ákveðið að leggja ríkari áherslu á efni sem tengjast tölvuleikjum. Nú er til að mynda hægt með auðveldum hætti að finna nýjustu fréttir, greinar, leikjarýni, Leikjavarpsþætti og annað efni sem tengist tölvuleikjum á heimasíðunni. Opnað hefur fyrir nýja flokk sem ber heitið íslenskt, þar verður hægt að nálgast efni sem tengist íslenskum leikjafyrirtækjum, íslenskum tölvuleikjaspilurum, leikjum, viðburðum…
Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu. Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er væntanlegur í sumar. Strákarnir rýna svo í leikina Elden Ring Nightreign, sem er frábrugðinn hinum hefðbundna Elden Ring, og Clair Obscur: Expedition 33 sem er „turn-based“ hlutverkaleikur frá franska leikjafyrirtækinu Sandfall Interactive. Forsíðumynd: Elden…
Daníel Rósinkrans, okkar helsti Nintendo sérfræðingur, var meðal þeirra sem mætti á miðnæturopnun Ormsson til að vera með þeim fyrstu á Íslandi til að eignast Switch 2, nýjustu leikjatölvu Nintendo. Í þessu myndbandi fylgjumst við með honum opna kassann og fara yfir þá hluti sem er að finna í kassanum, þar á meðal tölvuna sjálfa og Joy-Con 2 fjarstýringarnar.
Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira.