Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Leikjarýni»Nioh 3 – „Gott verður betra“
    Nioh 3_20260303155125
    Leikjarýni

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    Höf. Steinar Logi24. mars 2026Engar athugasemdir6 mín. lestur
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Nioh 3 náði nýlega þeim áfanga að hafa selst í yfir milljón eintökum og Nioh leikirnir sem heild yfir 10 milljón eintak en Nioh 3 er sá sem hefur verið að seljast sem hraðast í seríunni.

    Fyrir þá sem ekki þekkja þá eru Nioh leikirnir hasar-RPG-leikir með mikið af „loot“ þar sem maður er nánast stanslaust að berjast við heri af yfirnáttúrulegum verum af ýmsum stærðum og gerðum sem sækja uppruna sinn í japanska goðafræði. Hægt er að nota ýmsa bardagastíla og marg konar vopn. Sagan hefur alltaf verið aukaatriði í þessum leikjum en fyrir þá sem vilja kafa í hana þá á hún sér tilvísun í japanska sögu. Reyndar finnst mér sagan síst af öllum þremur leikjunum hérna en það þýðir ekki að þetta sé versti leikurinn.

    Nioh leikirnir hasar-RPG-leikir með mikið af „loot“ þar sem maður er nánast stanslaust að berjast við heri af yfirnáttúrulegum verum af ýmsum stærðum og gerðum

    Líklega hefur aldrei verið eins auðvelt að komast inn í Nioh leik og núna því að maður gat rekist á vegg með hina tvo og sumt var ekki alveg eins slípað og það mætti vera í spilun, sérstaklega fyrir þann fyrsta. Erfiðleikastigið er mun viðráðanlegra fyrir nýja spilara en áður. Heimurinn er líka mun opnaðri og hérna hefur maður þokkalega stórt opið svæði til að leika sér í og flækjast um til að safna hlutum og fleira en samt ekkert á við aðra stórleiki enda er það ekki aðaltilgangur leiksins.

    Stór breyting í Nioh 3 er að með einum takkasmelli getur maður breytt sér frá Ninja í Samurai og til baka. Ninja sérhæfir sig í að skjóta meira (s.s. shuriken stjörnum eða gildrum) og nota „ninjagaldra“ eins og reyksprengjur, lömunar-karatestjörnur og síðasta en ekki síst breyta sér í stóran kringlóttan kött sem rúllar sér um. Einnig ertu sneggri sem Ninja og með meira þol (stamina). Þolið hefur mikið að segja í Nioh leikjunum og þarf maður vel að passa að missa ekki andann því þá opnast gott tækifæri fyrir óvinina. Leikurinn hvetur þig til að skipta oft á milli því að ein leið til að “parry” óvinina er að skipta um leið.

    Stór breyting í Nioh 3 er að með einum takkasmelli getur maður breytt sér frá Ninja í Samurai og til baka.

    Samurai gerir líklega meira skaða með sínum stöðum (stances) og þá stjórnar maður hvort maður gerir þung og hæg högg, hraðari högg eða mitt á milli. Þetta er staðlaða Nioh týpan sem maður þekkir frá hinum leikjunum. Þú ert að safna saman klæðnaði (gear) fyrir báðar týpurnar sem er ágætt því að fjöldi þess sem maður er að fá er óbreyttur þ.e.a.s. nóg til að fylla nokkra vörubíla. Nioh 3 here samt bætt úr úrvinnslu hluta, núna geturðu haldið á feykimörgum hlutum áður en þú þarft að farga einhverju til að fá efni fyrir járnsmiðinn eða selt.

    Það eru alls konar aukaleiðir sem hægt er að nota í bardaga eins og að kalla upp verur til að berjast fyrir þig í smátíma, breyta sér sjálfum í guardian (hálfgerð gæludýr sem elta þig og gefa þér ýmsa eiginleika), nota ýmsa galdra og vopn, byssur og boga og svo mætti áfram telja. Að ónefndu öllum þeim bardagahreyfingum sem maður hefur heilu hæfileikatrén til að byggja upp. Það er hætta á að allir þessi möguleikar fæli byrjendur frá en ef maður gefur sér tíma þá finnur maður leið sem hentar manni.

    Come at me, bro

    Varðandi erfiðleikastigið þá mæli ég með að spila söguna með öðrum ef þú hefur færi á. Hann er það hraður og skemmtilegur að hann passar vel sem co-op leikur og hann er einstaklega vel hannaður að því leyti. Ég spilaði allan leikinn með öðrum og lenti aldrei í vandræðum. Þetta er einnig leið til að gera leikinn auðveldari því að maður hefur fleiri líf í co-op því að vinur þinn getur lífgað þig við nokkrum sinnum sem er ekki möguleiki þegar maður spilar einn. Reyndar fá óvinir aðeins meira líf þegar maður spilar co-op en það breytir nánast engu. Leikurinn getur verið smá erfiður í einstaka stórbardögum en þú getur fengið smá hjálp frá bardagahetjum sem leikurinn stjórnar þó að sú hjálp sé ekki það mikil eins og er. Það er alltaf hægt að detta aftur á að maður getur breytt strategíu, vopn, hjálpardýr og svo mætti áfram telja.

    Nioh leikirnir eru einir af þessum leikjum sem hægt er að spila áfram eftir að maður hefur klárað hann. Það bætast við erfiðari leikjastillingar og ýmsar áskoranir ásamt því að hlutirnir sem maður notar verða alltaf betri og betri („loot“ skiptist í venjulegt, sjaldgæft, epísk o.s.frv.). Team Ninja eiga eftir að halda áfram að vinna með leikinn og búa til aukasögu og einhvers konar “gauntlet” sem maður getur spilað aftur og aftur og unnið sig upp sb. Diablo leikir og fleira.

    Nioh leikirnir eru einir af þessum leikjum sem hægt er að spila áfram eftir að maður hefur klárað hann

    Leikurinn sjálfur er skemmtilegur, það er margt sem þeir eru búnir að slípa og gera betur en í Nioh 2 en formúlan er nánast sú sama. Ég kláraði leikinn en fékk ekki sama spenning að halda áfram í New Game plus eins og í Nioh 2 því að margt minnti bara of mikið á Nioh 2 og mér fannst dáldið eins og ég væri að fara gera sama hlutinn aftur því að ég eyddi mörgum tugum tímum í meta-leik Nioh 2. Bardagastílarnir, skrímslin, umhverfið, góðu verurnar, hvernig maður byggir sig upp, hvaða hluti maður er að fá og svo mætti lenga telja er nánast allt eins og í Nioh 2 og Nioh 1 bara í fallegri búningi.

    Gullfoss

    Þannig að þetta er góður leikur fyrir þá sem vilja prófa seríuna en fyrir vana spilara þá er möguleikinn á að maður gefist upp fyrr en maður ætlar sér því að margt er óbreytt. En ef þú elskar formúluna þá ertu kannski sáttur við að taka annað áhlaup á „meta“ leikinn og hvernig hann er öðru vísi núna. En staðreyndin er að þetta er vel gerður leikur sem svíkur ekki. Ég spilaði hann á PS5 venjulegri og lenti ekki í FPS vandræðum. Vonandi hristir Ninja Theory aðeins meira upp í hlutunum þegar Nioh 4 kemur en miðað við sölutölur þá er formúlan ennþá að virka.

    8.5 Gæðagripur

    Ninja Games taka engar áhættur en þurfa þess heldur ekki því að formúlan virkar og sölutölur styðja það. Nioh 3 er vel slípaður leikur og aldrei eins góður tími að detta í þennan Yokai-fyllta heim þar sem "aksjón" er stöðugt.

    Það góða
    1. Vel slípaður demantur
    2. notendavænni en hinir, góður fyrir nýja spilara
    3. Einn besti action-RPG á markaðinum
    4. Skemmtilegur í co-op
    Það slæma
    1. Ekki mikið um nýjungar
    2. Ef maður hefur spilað fyrri leiki í tætlur þá endast maður ekki lengi
    • Einkunn lesenda (0 atkvæði) 0
    Leikjarýni loot Nioh Nioh 3 playstation PS5 RPG Steinar Logi Sigurðsson
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaNature Meets Play – ráðstefna um gerð námsleikja 17. mars í HR
    Steinar Logi

    Svipaðar færslur

    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3

    16. febrúar 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Geisladiskabúð Valda á tímamótum

    17. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026

    Nature Meets Play – ráðstefna um gerð námsleikja 17. mars í HR

    17. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Nioh 3 – „Gott verður betra“
    • Nature Meets Play – ráðstefna um gerð námsleikja 17. mars í HR
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.