Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Íslenskt»Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    Íslenskt

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    Höf. Bjarki Þór Jónsson8. mars 2026Uppfært:8. mars 2026Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Það styttist í að haldið verði upp á Mario-daginn – Mar10 Day – sem er fagnað 10. mars ár hvert. Dagurinn er tileinkaður Mario, einni frægustu tölvuleikjapersónu sögunnar, sem hefur glatt hjörtu spilara á öllum aldri undanfarin 40 ár. Nintendo mun bjóða upp á afslátt af völdum Mario-leikjum á eShop netverslun sinni en einnig verður boðið upp á sérstaka dagskrá á Next Level Gaming í tilefni dagsins. Þar verður hægt að keppa í Mario Kart, spila bingó þar sem aðalvinningurinn er Switch 2 tölva, njóta Mario djasstónleika og margt fleira.

    Hér fyrir neðan er að finna dagskrána í held sinni sem stendur yfir 10.-15. mars. Til að fá nýjustu tilkynningar er best að fylgjast með viðburðinum á Facebook, þar er einnig að finna upplýsingar um hvernig á að skrá sig til leiks í Mario Kart og Super Smash Bros. mótin.

    Dagskrá Mario Con 2026
    Þriðjudagurinn 10. mars – fimmtudagurinn 12. mars
    Mar10 daga sértilboð: 50% afsláttur af spilun á Nintendo tölvum og Ormsson VIP herberginu. Í boði að spila Mario Kart með alvöru stýrum.
    Föstudagurinn 13. mars
    Í boði að spila frítt á klassískum Nintendo tölvum allan daginn.
    18:45 – 19:45 Lifandi djass – Frír aðgangur (panta þarf sæti með tölvupósti)
    20:00 – 21:00 Bingó – Aðalvinningur er Nintendo Switch 2
    Laugardagurinn 14. mars
    12:00 – 16:00 Mario Kart 8 Deluxe mót
    15:00 – Mario Kart World barnamót (fyrir 10 ára og yngri)
    17:00 – 21:00 Mario Kart World mót
    Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í mótin og borga þátttökugjald.
    Sunnudagurinn 15. mars
    13:00 – 18:00 Super Smash Bros. mót
    Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í mótið og borga þátttökugjald.

    Mynd (breytt útgáfa): Mario Con 2026 á Facebook

    keppni Mar10 mario Mario Con Mario Kart Next Level Gaming rafíþróttir Super Smash Bros tónlist
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaÍslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    Næsta færsla Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars

    19. febrúar 2026

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026

    Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik

    14. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.